Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 95
Þingforsetarnir höfðu í nógu að snúast meðan á þinghaldinu stóð. Fremstur er
Jón Karlsson forseti þingsins, þá Hansína A. Stefánsdóttir og loks Hrafnkell A.
Jónsson.
Innra frœðslustarf verkalýðshreyfingarinnar
Framsögumaður var Elínbjörg Magnúsdóttir. Hún sagði það hlutverk ASÍ að
hafa forystu í stéttarbaráttu og félagsstarfsemi alþýðunnar á Islandi með því m.a.
að móta og samræma heildarstefnu í launa- og kjaramálum. Efla þyrfti trúnað-
armenn á vinnustöðum vegna margvíslegra starfa og stækkandi verksviðs þeir-
ra, efla stjórnir stéttarfélaganna, samninganefndirnar og fulltrúa í stjórnum líf-
eyrissjóða. Með menntun þessa fólks yrði hreyfingin öflugri, það þyrfti að
þekkja aðferðir í stjórnun fyrirtækja og starfsmanna, kunna skil á rekstri, kunna
að lesa ársreikninga og geta notað rökin í rekstrarfræði fyrirtækjanna sér í hag
við samningaborðið.
Hún sagði þjónustu við stéttarfélaganna mikilvæga, þannig mætti fjölga fé-
lagsmönnum og auka félagsvitund þeirra. Hver einasti félagsmaður þyrfti að
þekkja rétt sinn, hvernig rétturinn vannst og hvert beri að stefna.
Elínbjörg sagði að þekking og þróttmikið innra fræðslustarf væru undirstaða
öflugrar og framsækinnar verkalýðshreyfingar og lykilatriði í átökum um sam-
félag framtíðarinnar. Undirstaða kröftugs innra fræðslustarfs væri skilningur á
nauðsyn þess, vilji og fé til starfseminnar. Það fé ætti verkalýðshreyfingin að
sækja í þann sjóð sem standa ætti undir menntun landsmanna; ríkissjóð sem við
ættum sjálf. Til væru lög um Félagsmálaskóla alþýðu og í krafti þeirra ætti að
sækja aukið fjármagn.
I annarri umræðu kynnti Þorbjörn Guðmundsson niðurstöður þingnefndar,
en tillögurnar komu svo til óbreyttar frá nefndinni. Þorbjörn ítrekaði nokkur
93