Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Blaðsíða 137
að verkafólk njóti nauðsynlegrar lagaverndar, sé vel upplýst og búi við öryggi og
að aðbúnaður sé í lagi á vinnustöðum þess.
í heimi örra tæknibreytinga skapast þær aðstæður að nýjar hættur steðja sífellt
að verkafólki, bæði í formi breyttra vinnuaðstæðna og meðferðar nýrra efna og
tækja. Af þeim sökum eru vinnuvemdarmál ekki þess eðlis að hægt sé að afgreiða
þau með einu átaki, heldur er hér um samfellt og síbreytilegt verkefni að ræða
sem krefst stöðugrar árvekni og aðgerða.
Því miður er það staðreynd að þessi málaflokkur hefur ekki, þrátt fyrir mikil-
vægi hans, notið þeirrar athygli sem skyldi, hvorki hjá stjómvöldum, vinnuveit-
endum, né verkafólki.
Alþýðusamband Islands er staðráðið í að beita sameinuðum kröftum sínum í
þeim tilgangi að snúa vörn í sókn í þessum málum, snúa sinnuleysi til árvekni og
stuðla á þann hátt að því að skapa verkafólki það starfsumhverfi sem það á rétt á.
Helstu áhersluatriði í stefnu Alþýðusambands íslands í vinnuverndarmálum
eru eftirfarandi:
• Að komið verði á vel skipulagðri fræðslu í skólakerfinu, allt frá forskólastigi
og upp menntakerfið, sem stuðli að því að gera unga fólkið sér meðvitað um
vinnuverndarmál áður en það kemur út í atvinnulífið.
Alþýðusambandið vill:
• Að tekin verði upp í grunnskólum undirbúningsfræðsla, hliðstæð við um-
ferðarfræðslu í skólum er miði að því að fræða börnin um þær hættur sem
fólgnar eru í umhverfinu, bæði slysahættu og hættuleg efni.
• Að kennd verði líkamsbeiting á grunnskólastigi.
• Að fram fari kennsla í lögum og reglum um öryggi og aðbúnað sem gerð
verði að skyldugrein á öllum skólastigum.
• Að Vinnueftirlit ríkisins annist námsgagnagerð og kennsluleiðbeiningar
ásamt kennslu þeirra leiðbeinenda sem annast fræðslu nemenda.
• Að Alþýðusambandið verði leiðandi aðili í heildarsamræmingu vinnuvernd-
armála.
Alþýðusambandið vill:
• Að sett verði heildstæð löggjöf um vinnuverndarmál hið fyrsta á íslandi og
að tryggt verði að hún sé sambærileg við það besta sem gerist í nágranna-
löndunum.
• Að komið verði á fót vinnuverndardeild innan Alþýðusambandsins.
Verkejhi deildarinnar verði:
• Að vera í forsvari gagnvart vinnuveitendum, stjórnvöldum og eftirlits-
stofnunum.
• Að aðstoða einstök sambönd og félög við framkvæmd vinnuverndar-
mála.
135