Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 156
Nýkjörin miðstjórn ASI fyrir utan þingstaðinn.
Þinglok
Þingstörfin gengu hratt fyrir sig, þrátt fyrir tafir við kosningar, og lauk þinginu
nokkru fyrr en framlögð dagskrá gerði ráð fyrir. Nýkjörinn forseti, Grétar Þor-
steinsson, bauð nýja miðstjórnarmenn velkomna til starfa sem og nýja stjórn-
armenn MFA og alla aðra sem kjörnir höfðu verið til trúnaðarstarfa á þinginu.
Forseti kallaði fráfarandi miðstjórnarmenn upp á sviðið: Magnús Geirsson,
Guðríði Elíasdóttur, Hrafnkel A. Jónsson, Oskar Vigfússon, Þórunni Svein-
bjarnardóttur og Böðvar Pétursson, og þakkaði þeim unnin störf í þágu hreyf-
ingarinnar.
Magnús Geirsson þakkaði fyrir góð kynni og ávarpaði þingið fyrir hönd frá-
farandi miðstjórnarmanna.
Næst kallaði forseti Guðmund Hilmarsson og Ólöfu Svöfu Halldórsdóttur
fráfarandi stjórnarmenn MFA á svið og þakkaði þeim fyrir vel unnin störf.
Þá kallaði Grétar, Benedikt Davíðsson, fráfarandi forseta, upp á svið og
færði honum þakkir fyrir sína hönd og ASI fyrir vel unnin störf í þágu hreyf-
ingarinnar.
Benedikt Davíðsson tók til máls og fagnaði því að geta kvatt í góðri sátt.
Benedikt lýsti fullu trausti á nýja forystu og óskaði hreyfingunni allri velfarn-
aðar.
Þá tóku til máls varaforsetar ASÍ, fyrst Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, 2.
154