Ský - 01.08.2004, Side 10
l'X’ «nk ■■ «■
SKÝ
10
síspurði Símon frænda sinn hvað hann væri að malla, en Símon var
ekkert á því að upplýsa þessa smástráka um það. Sigmar spurði hins
vegar einskis. Þegar Símon brá sér frá, steig Sigmar upp á eldhússtól,
opnaði lokið á bruggpottinum og sagði: „Þetta er allt í lagi Hjalli,
þetta er bara súpa!"
Jón segir Sigmar alltaf hafa lag á að finna út úr hlutunum og leysa þá
á sinn hátt og segir eftirfarandi sögu í því sambandi:
„Einhverju sinni þegar Sigmar var barn, lá hann á sjúkrahúsi. Hann
tók eftir því að nokkrir strákar komu, fóru í ákveðna viðkvæma aðgerð
á þvagfærum og fóru fljótt aftur. Eitt sinn spurði Sigmar strák, sem
var nýkominn á spítalann, hvað væri að. Strákurinn var eitthvað
afundinn og vildi ekki svara. Þá sagði Simmi: „Ég veit hvað er að þér.
Það er eitthvað að typpinu á þér, en það er allt i lagi. Það verður bara
skorið af þér á morgun, það er alltaf gert..."
Sigmar Vilhjálmsson hefur aldrei átt erfitt með að tjá sig, eftir því sem
kemur fram hjá viðmælendum blaðsins. Þannig segir Egill Fannar,
æskuvinur hans, frá því að eitt sinn þegar þeir vinirnir voru í sumar-
búðum á Eiðum hafi presti einum þótt þeir með fullmikil læti á kvöld-
vökunum:
„Presturinn bað alla í salnum að greiða atkvæði um hvort hann ætti
að senda okkur upp á herbergi eða lofa okkur að vera með fimm
mínútna "show" í lok hverrar vöku. Prestinum til ama vildi meiri-
hlutinn "showið". Þegar Sigmar fluttist til Svíþjóðar á
unglingsárunum sendum við á milli okkar segulbandsspólur sem við
höfðum talað inn á. Oftar en ekki var Simmi með leikrit, þar sem hann
sá um að leika allar persónur með mikilli raddbreytingu, eða hann
þóttist vera með útvarpsþætti og talaði í 90 mínútur um allt og ekkert
við sjálfan sig. Hann er því á hárréttri hillu í lífinu," segir Egill Fannar.
Þegar Sigmarflutti til Reykjavíkur átti hann Subaru Justy, "skelfilegan,
eldgamlan, rauðan bíl" segir Egill Fannar: „Bíllinn var með spoiler og
sóllúgu, en þegar stelpurnar spurðu Simma hvernig bíl hann ætti
svaraði hann án þess að hika: „Rauðan, japanskan, fjórhjóladrifinn
sportbíl með spoiler og topplúgu. Hann getur nefnilega alltaf bjarg-
að sér án þess að Ijúga!"
Sigmar virðist ekki hafa marga galla - og þeir sem nefndir eru til
sögunnar flokkast varla undir galla:
„Hann getur virkað svolítið stuðandi á fólk, enda er hann svo hugmyndaríkur
að það heyrir stundum til vandræða," segir Jóhannes samstarfsmaður hans.
„Hei Jói, ég var að fá hugmynd!" er setning sem ég hef heyrt daglega í sex
ár. Hann er skapmikill og getur verið fljótur upp, en hann er jafnfljótur niður
aftur og á auðvelt með sættir. Hann þolir ekki óstundvísi og leti og lætur menn
óspart heyra það ef honum finnst þeir ekki standa sig. Simmi á það líka til að
fara lítillega fram úrsjálfum sér, en þá setur hann bara í fjórða gír og nær sér
aftur..."
Undir orð Jóhannesar um að Sigmar eigi auðvelt með sættir, tekur
Helgi Halldórsson:
„Fyrstu ár hans í Egilsstaðaskóla varð hann alltaf mjög bljúgur ef
hann gerði eitthvað af sér og langoftast var hann fljótur að biðjast
fyrirgefningar á því sem hann hafði gert. Hann var fljótur að viður-
kenna ef hann hafði brotið af sér, en það var helst að illa gengi að fá
hlutina á hreint ef félagi var með honum í för. Þá var reynt að strögla
svolítið og ég sé fyrir mér stríðnisvipinn á þeim Sigmari og Agli vini
hans þegar ég var að yfirheyra þá!"
Einar bróðir hans segir að þótt mikið hafi stundum gengið á milli
yngstu bræðranna á heimilinu hafi Sigmar "snemma náð að stilla
skopskyn sitt og glaðværð þannig að félli réttu megin við passlegu
mörkin að bestu manna yfirsýn. Sú stilling virðist mér prýða vel minn
elskulega bróður í dag, sem ótvírætt hefur vaxið upp úr viðurnefninu
"litli bróðir" bræðra sinna í ýmsum skilningi."
Jón S. Guðnason segir ótal skemmtilegar uppákomur hjá Sigmari og
bræðrum hans minnisstæðar sér og Þórdísi konu sinni og þrátt fyrir
gamansemi Sigmars sé stutt í alvöruna hjá honum:
„Það kom vel í Ijós þegar hann stofnaði fjölskyldu og eignaðist barn,"
segir Jón. „Hann hefur mjög í heiðri góð gildi og er samviskusamur,
traustur og hlýr heimilismaður og faðir sem lætur sér mjög annt um
sitt fólk."
Skólastjórinn hans, Helgi Halldórsson, segist alltaf hafa verið viss um
að Sigmar ætti eftir að bjarga sér í framtíðinni, en hafi hins vegar átt
erfitt með að átta sig á hvað yrði fyrir valinu:
„Það var ekki fyrr en á menntaskólaárunum sem maður sá hvert stefndi,"
segir hann. „Það verður að segjast eins og er að við kennarar hans
höfum verið ákaflega stolt af honum og ekki hvað síst fyrir hve vel
máli farinn hann er og veit ég að það er uppeldinu og að einhverju
leyti okkur að þakka. Hann er trúr uppruna sínum og enginn
Egilsstaðabúi fyrr né síðar hefur komið bæjarfélaginu eins vel á kortið
hjá ungu fólki eins og Sigmar."
Það er greinilegt að Sigmar Vilhjálmsson er sönn manneskja og það
sem við sjáum á skjánum sýnir hans innri mann:
„Eftir sex ára tvíburasamstarf með þeim rauðhærða tel ég mig lán-
saman að hafa haft hann mér við hlið. Við hófum leikinn sem vinnu-
félagar, en í dag erum við fyrst og fremst góðir vinir og betri vin er
vart hægt að hugsa sér," segir Jói, samstarfsfélagi hans.
Og við lofum eiginkonunni, Bryndísi Björgu, að eiga lokaorð þessarar
nærmyndar af Sigmari Vilhjálmssyni - Simma í Idol:
„Þegar við Simmi byrjuðum að vera saman hafði hann lagt spjótið á
hilluna, stundaði sitt nám og vann sem helgarstarfsmaður á
útvarpsstöðinni Mono. Hann sagði mér fljótlega að hann stefndi að
því að fá fastráðningu hjá Norðurljósum. Það tókst tveimur mánuðum
síðar. Hann stefndi að því að vinna í sjónarpi. Það tókst. Það kemur
mér ekki á óvart að honum hafi tekist það sem hann stefndi að því
hann er metnaðarfyllsta manneskja sem ég þekki, mjög skipulagður
og duglegur. Simmi er uppátækjasamur og mjög hugmyndaríkur.
Hann er einlægur, vinur vina sinna, ákveðinn og auðvitað
einstaklega myndarlegur. Hann er heimakær maður sem elskar að
vera í faðmi fjölskyldunnar og nýtur þess að vera með Einari Karli syni
okkar. Það er frábært að fylgjast með þeim feðgum, sérstaklega
þegar sá stutti kemur með sömu takta og pabbi sinn! Ef Simmi væri
ekki sjónvarpsmaður, sæi ég alveg fyrir mér að hann myndi una sér
sem kennari.' 'vL*