Ský - 01.08.2004, Side 12
Spád ■
15. SEPTEMBER 2004
Dagsetningin 15. septennber hefur hljómað æ oftar í dægurmáiaumræðunni á
undanförnum vikum og mánuðum. Kannski ekki að undra því legið hefur fyrir að
Davíð Oddsson muni hverfa úr forsætisráðuneyti þar sem hann hefur haldið um
taumana síðan vorið 1991. Við tekur Halldór Ásgrímsson eins og kunnugt er og
Sigríður Anna Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki, verður umhverfisráðherra í stað Sivjar
Friðleifsdóttur sem fær hvíld frá ríkisstjórninni. Þessar breytingar liggja nú fyrir, einn
ráðherra lætur af störfum, Siv, og einn nýr tekur til starfa, Sigríður. En þeirri spurn-
ingu sem flestir veltu fyrir sér hefur nú verið svarað. Hvað skyldi Davíð gera? Jú
hann verður utanríkisráðherra í stað Halldórs.
SKÝ
12
MANNASKIPTI, EKKI STEFNUBREYTING
Ólíklegt er að einhverjar stefnubreytingar verði hjá ríkisstjórninni þó
að forsætisráðuneytið færist á milli flokka, að mati dr. Gunnars Helga
Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við HÍ. Þó á hann von á því
að Davíð Oddsson gæti orðið nokkuð frábrugðinn Halldóri Ásgríms-
syni í utanríkisráðuneytinu:
„Auðvitað er það þannig að Davíð er með nokkuð öðruvísi áherslur
í Evrópumálum heldur en Halldór. Utanríkisráðherrann býr til dag-
skrána í utanríkismálum, hvað er verið að ræða, hvaða mál eru í
sviðsljósinu og svo framvegis. Mér finnst líklegt að Davíð, sem er
mjög eindreginn Evrópuandstæðingur, muni hafa áherslurnar
þannig að þær áherslur verði í forgrunni, á meðan Halldór var meira
í því að reyna að opna málið. Halldór var til dæmis með útspil í
Þýskalandi hér um árið, þar sem hann gaf í skyn að hugsanlega væri
hægt að semja við Evrópusambandið um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Hann var að reyna að opna Evrópumálin og ég tel engar líkur á því
að Davíð muni reyna einhverja slíka leiki. Ekki það að þetta hafi skil-
að miklu svo sem því reynt hefur verið að forðast átök um þetta mál
og ég á ekki von á breytingu í þeim efnum. í heildina litið verða því
litlar stefnubreytingar hjá ríkisstjórninni enda liggur stjórnarsáttmáli
fyrir, þó svo að þeir sáttmálar séu aldrei mjög ítarlegir. Ég get ekki
heldur séð að breytingarnar sem verða með umhverfisráðuneytinu
muni hafa stefnubreytingar! för með sér. Aðalatriðið er að þarna eru
mannaskipti á ferðinni, frekar en einhver ný stefna hjá stjórninni enda
er þetta sama stjórnin, með sömu flokkum."