Ský - 01.08.2004, Blaðsíða 14
SKÝ
14
Nú liggur auðvitað stjórnarsáttmáli fyrir, en telurðu að fólk megi
eiga von á einhverjum áherslubreytingum hjá ríkisstjórninni eftir að
Framsókn tekur við forsætinu?
„Eins og þú bendir réttilega á liggur fyrir stjórnarsáttmáli þar sem
meginmarkmið ríkisstjórnarinnar eru sett fram. Það verður því engin
kúvending á stefnu stjórnarinnar. Það fylgja því hins vegar alltaf
áherslubreytingar þegar nýr forsætisráðherra tekur við embætti. Það
skiptir því miklu máli hver það er sem leiðir ríkisstjórn. í þessu sam-
bandi tel ég sérstaklega mikilvægt að þingmenn og forystumenn
Sjálfstæðisflokksins tryggi það að gengið verði til þeirra skattalækk-
ana sem lofað var fyrir síðustu kosningar. Þótt sumar þeirra hafi þegar
gengið í gegn eru veigamiklar skattalækkanir eftir sem munu skipta
almenning í landinu miklu máli. Sjálfstæðisflokkurinn má hvergi hvika
í þeim efnum."
Heldurðu að það skipti hinn almenna sjálfstæðismann máli hvort
flokkurinn sé með forsætisráðuneytið eða ekki?
„Já, ég held að það skipti miklu máli í huga sjálfstæðismanna hvort
flokkurinn leiði ríkisstjórnina. Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá stofnun
verið stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar og því eðlilegt að hann sé
áhrifamikill í íslenskum stjórnmálum. I samræmi við þetta hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn nú leitt ríkisstjórn í þrettán ár. Samstarfið við núver-
andi samstarfsflokk hefur verið gott og í því Ijósi er niðurstaðan um
að Framsóknarflokkurinn taki við forsætisráðuneytinu viðunandi. Því
má svo ekki gleyma að þótt forsætisráðuneytið verði í höndum fram-
sóknarmanna munu sjö reynslumiklir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
sitja í ráðherrastólum. Sjálfstæðismenn munu því eftir sem áður leika
lykilhlutverk við stjórn landsins. Því eins og ég sagði áðan, þegar allt
kemurtil alls, eru það ekki völdin og það hver situr í hvaða ráðherra-
stól sem skiptir máli heldur sú stefna sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir
og sá árangursem hún nær. Ríkisstjórn Islands, hver sem hana leiðir,
á að mínu mati að beita sér fyrir áframhaldandi skattalækkunum,
einkavæðingu og auknu frelsi almennings á Islandi."
Nokkur umræða hefur farið fram um titring í stjórnarsamstarfinu.
Sérðu fyrir þér að stjórnin sitji út kjörtímabilið?
„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að stjórnin sitji út kjörtímabilið. Þótt
einhver blöð hafi nánast daglega spáð falli ríkisstjórnarinnar held ég
að slík umfjöllun hafi frekar ráðist af óskhyggju en raunhæfu mati á
aðstæðum. Það blasir hins vegar við að það hefur reynt á forystu-
menn stjórnarflokkanna og samstarf þeirra. En þeir hafa unnið vel
saman og getað leyst þau mál sem upp hafa komið. Ég geri ráð fyrir
að þannig verði það áfram út kjörtímabilið."
MATTHIAS IMSLAND:
RÍKISSTJÓRN HALLDÓRS
VERÐUR VELFERÐARSTJÓRN
Ráðherrum Framsóknar mun fækka um einn þann 15. september.
Áttu von á því að deilurnar innan flokksins undanfarið muni hafa
varanleg áhrif á flokkinn?
„Umræðan í Framsóknarflokknum undanfarnar vikur hefur haft mikil
áhrif, ekki bara á Framsóknarflokkinn heldur um allt samfélagið. Það
hefur í kjölfar ákvörðunar þingflokks Framsóknarflokksins orðið
ákveðin jafnréttisvakning í samfélaginu sem er mjög af hinu góða.
Konurnar og jafnréttissinnar í Framsóknarflokknum vilja að þessi bar-
átta skili sér svo um munar í innra flokksstarfinu, þannig má búast við
fleiri framboðum kvenna í stjórnir félaga, kjördæmasambanda og
jafnvel á fleiri vígstöðvum."
Boðaðar hafa verið breytingar síðar á kjörtímabilinu. Hvað sérðu
fyrir þér í þeim efnum? Koma einhverjir nýir ráðherrar til greina hjá
Framsókn?
„Ég sé fyrir mér að ákveðnar breytingar gætu átt sér stað síðar á
kjörtímabilinu. Það er að verða gríðarleg vakning innan Framsóknar-
flokksins um mikilvægi höfuðborgarsvæðisins og eru menn almennt
sammála um að uppbyggingin þurfi að eiga sér stað í Reykjavík. I
Félagi ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður hefurtil
að mynda orðið gríðarleg fjölgun félagsmanna undanfarna mánuði
og það mæta vel yfir 100 manns á flestar uppákomur sem eiga sér
stað. Ég held að þessi áhersla þurfi að endurspeglast í ráðherravali
flokksins; þannig myndi ég vilja sjá bætt við ráðherra af höfuðborg-
arsvæðinu siðar á kjörtímabilinu. Það er líka mikilvægt fyrir flokkinn
að sýna breidd, með sterka, vel menntaða ráðherra."
Nú liggur auðvitað stjórnarsáttmáli fyrir, en telurðu að fólk megi
eiga von á einhverjum áherslubreytingum hjá ríkisstjórninni eftir að
Framsókn tekur við forsætinu?
„Já, ég á von á áherslubreytingum, það hefur verið gríðarlegur hag-
vöxtur á íslandi og ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
ertrúlega besta og öflugasta ríkisstjórn síðustu aldar. Þó hefur mörg-
um framsóknarmanninum þótt Sjálfstæðisflokkurinn ákveðinn drag-
bítur á góð verk ríkisstjórnarinnar með afturhaldssemi. Einnig hafa
ákveðnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins komist upp með óábyrgt tal
og ákveðna rökleysu í þjóðfélagsumræðunni. Til að mynda þegar
ríkisstjórnin var búin að ákveða að fara ! undirbúning skattalækkana
í kjölfar kjarasamninga, komu nokkrir þingmenn flokksins með
furðulegar yfirlýsingar þegar fyrsti kjarasamningurinn af mörgum lá
fyrir. Reyndar var ekki einu sinni búið að samþykkja hann af félags-
mönnum. Slíkt hefur dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar og
því þarf að linna. Ég hef trú á því að ríkisstjórn Halldórs Ásgrímsson-
ar verði velferðarstjórn, það er mikilvægt að tryggja frelsi einstakl-
inganna en ekki á kostnað grunnöryggisnets samfélagsins."
Heldurðu að það skipti hinn almenna framsóknarmann máli hvort
Framsókn sé með forsætisráðuneytið eða ekki? Af hverju?
„Ég held að það skipti gríðarlegu máli fyrir hinn almenna flokksmann
að Framsóknarflokkurinn hafi forsætisráðuneytið, það hefur verið
ákveðin þreyta með forystuhlutverk Sjálfstæðismanna, ekki bara
meðal framsóknarmanna heldur almennt í samfélaginu. Framsóknar-
flokkurinn er flokkur fjölskyldunnar og fólksins í landinu, flokkur skyn-
semi og festu. Flokkurinn byggist á sterkri hugmyndafræði sem
gengur út á það að tryggja velferð í samfélaginu, velferð byggða a
því að einstaklingarnir og fyrirtækin fái að njóta sín til fullustu og skila
þannig arði til samfélagsins, en þetta má hins vegar ekki vera á kostn-
að náungans. Það skipta allir einstaklingar sem byggja samfélagið
máli hjá Framsóknarflokknum."
'Kn&tján Jám&an er <st/ómmálafrseóinemi &emfylffi&t
graruvt með stjánimálaumrseðunm í landinu.