Ský - 01.08.2004, Síða 18
A* fvemst
LOFTSSAGA HARÐAR TORFA
Hann er endalaus uppspretta hugmynda. Hann virðist ódauðlegur — í það
minnsta óþreytandi. Enn á ný fyllti hann tónleikasali í september; í þetta sinn í
Austurbæ. Þetta var í 28. skiptið sem hann hélt sína árlegu hausttónleika.
Hörður Torfa hefur skapað ómótstæðilega karaktera í Ijóðum sínum og
söngvum og nú er hann enn á ný kominn með nýja plötu, Loftssögu, sem er þó
aðeins einn kafli í fimm þátta ævintýrinu „Vitinn”.
SEM ER HVAÐ?
Síðan ég var rúmlega fertugur hafa ýmsir menn komið til mín og viljað
skrifa ævisögu mína en ekkert orðið úr sennilega vegna þess að mig
hefur skort áhuga og tíma til að sinna verkefninu. Eg fór samt að eiga
við hugmyndina og úr varð Ijóðið Vitinn sem ég gaf út í Ijóðabókinni
YRK. Það er grunntónn ævintýrsins. Ævintýrið Vitinn skiptist í fimm
meginþætti: Eld, Loft, Jörð, Vatn og Vitann. Ævintýrið er byggt á
. minni lífsreynslu og viðhorfum með hæfilega miklum skammti af
SKY ; fantasíu og svo er hrært í lyklaborðinu og leikhúsmenntun minni bætt
18 ; inn í lokin. Eldssaga kom út í fýrra og er óður minn til ástarinnar og
þeirrar mannréttindabaráttu sem ég hef stundað hér á landi í rúm
þrjátíu ár í gegnum söngva mína. Með þeim og framkomu minni hef
ég reynt að benda á fjölbreytileika mannlífsins og þá staðreynd að
það er pláss hérna handa okkur öllum. Og því litskrúðugra sem
mannlífið er, því ánægjulegra lífi lifa einstaklingarnir.
HVAÐ ER LOFTSSAGA?
Loftssaga er óður minn til leikhússins því ég er menntaður leikari en
líkt og teiknari teiknar portrettu á blað bregður leikarinn upp
portrettu á sviði. Við getum bent á handlegg, höfuð og búk manns
en aðeins talað og skynjað ákveðin einstaklingseinkenni. Allt hið
andlega er loftkennt og vandi okkar manna er oftast bundinn í að
brúa það og hið veraldlega. Á þessum mörkum verða flestir árekstrar
okkar við okkur sjálf og aðra og birtingarmyndirnar geta verið undar-
legar, oft við fyrstu kynni hlægilegar en við nánari könnun verða þær
grátlegar og svo öfugt. Ælandssöngvar eiga það sameiginlegt að
þeir eru í fyrstu persónu þar sem manneskja talar upphátt um líf sitt
og viðhorf. Fyrsta Ælandssönginn setti ég á plötu 1975 en það var
söngurinn „14 ára." Þá fór að gerjast með mér löngun til að
bergmála umhverfi mitt og eðli manneskjunnar. Æland er eyja sem
ekki sést ekki berum augum, hversu mjög sem menn stara, til hennar
ganga engarferjur, þangað liggja engar brýr og ekki er vitað til þess
að þar hafi lent flugvél. Hún finnst ekki á kortum, en gamlar munn-
mælasögur herma að hún liggi á flekaskilum hægra og vinstra
heilahvels. Hún flýtur einhverstaðar austan við allt og vestan við ekki
neitt og jafnvel spölkorn norðar en suðrið.
KARAKTERINN í VITANUM SÉR ANDLIT
ÖLDUNGSINS SPEGLAST í RÚÐUNNI.
ÞÚ ERT NÚ VARLA FARINN AÐ UPPLIFA
ÞIG SEM ÖLDUNG?
Nei, ekki get ég sagt það en ég eldist eins og aðrir og breytist í takt
við það og sama er að segja um flest í kringum mig. Eg á það
sameiginlegt með flestum mönnum að vera ungmenni innan í mér,
það er líkt og flestir festist andlega um tvítugt. Hugurinn gleymir sér á
stundum í djörfum áformum og er minntur á raunveruleikann þegar
maður lítur í spegil. Ævintýrið Vitinn er tímalaust í sjálfu sér því þó ég
byggi það á reynslu minni þá getur það þessvegna verið um hvern
sem er. Það situr hver og einn uppi með sjálfan sig og það kemur að
því í lífi hvers einstaklings að hann horfist í augu við sjálfan sig.
Ævintýrið er um einstakling sem sættist við að vera það sem hann er
og það sem hann hefur. Hann sér aftur og fram fyrir sig í tíma. Hann
stendur utan við allt og og fylgist með manneskju hálfvantrúaður á allt
sem fyrir ber og reynir margoft að hafa áhrif á líf þessarar manneskju
sem hann kannast einhvern veginn mjög vel við en það er samt ekki
fyrr en í lokin að honum verður Ijóst að hann hefur verið að fylgjast
með eigin lífi. Þetta er eintal, ávarp einstaklings til umheimsins.
FINNST ÞÉR KOMINN TÍMI FYRIR LÍFSUPPGJÖR
ÞITT EÐA VAR ÞAÐ EINHVER ÖNNUR
TILFINNING SEM KALLAÐI FRAM ÞESSA TEXTA?
Ég hef alltaf verið í einhverskonar lífsuppgjöri, líkt og verslunarmaður
sem gerir upp um hver áramót. Það þarf alltaf að fara yfir lagerinn og
skoða stöðuna. Efinn er stór þáttur lífs míns og þar af leiðandi er ég
í stöðugri endurskoðun. Og þá kemur sú krafan af sjálfu sér að ég
endurmeti aðstöðu mína og umhverfi.
SAGAN GERIST Á EYJUNNI Æ OG 1 6 REGLUR
HENNAR MINNA SVOLÍTIÐ Á AÐRA EYJU. REGLA
NÚMER SJÖ TIL DÆMIS: “HVER SÁ SEM ER STÆRRI
OG MEIRI EN ÆLENDINGUR Á EINHVERN HÁTT
SKAL UMSVIFA- OG UNDANTEKNINGALAUST
SMÆKKAÐUR MEÐ ÖLLUM RÁÐUM.” EITTHVAÐ
KANNAST MAÐUR NÚ VIÐ AÐ SLÍK REGLA HAFI
VERIÐ í HÁVEGUM HÖFÐ ÞÓTT ÓSKRÁÐ SÉ...
Ég leik mér að orðum. Æ er líka I í ensku. Ælendingar eru afskaplega
uppteknir af sjálfum sér. Það er samt ekki allt sem sýnist á Ælandi.
Það má segja að Ælendingar séu sérfræðingar í flótta frá raun-
veruleikanum eða að þeir séu arkitektar þess raunveruleika sem því
miður passar ekki alltaf við raunveruleika annarra. Það eru allar mann-
eskjur Ælendingur í eðli sínu aðeins mislengi ævinnar og því er ekki
að neita að sumir hafa tekið sér bólfestu þar.
i