Ský - 01.08.2004, Page 21
VONLAUST AÐ LÁTA SÉR LEIÐAST ...
Þórhallur Gunnarsson, leikari og dagskrárgerðarmaður á Stöð 2, vinnur undir
stöðugu álagi, eins og þeir þekkja sem eru í beinum útsendingum
Ijósvakamiðlanna. Hann fær vissulega sitt sumarfrí, en ætli hann reyni ekki að
komast frá vökulum augum áhorfenda dag og dag yfir háveturinn?
„Ég reyni að komast til London minnst einu sinni á vetri og jafnvel tvisvar. Borgin
sameinar allt sem nautnaseggir eins og ég og konan mín þurfum til að njóta lífsins.
Þarna eru frábærir veitingastaðir, italskir og indverskir, góðar leiksýningar,
skemmtileg söfn á hverju götuhorni og síðan reyni ég að sjá minnst einn fót-
boltaleik í hverri ferð. Síðustu ár höfum við verið í New York yfir páskana. Þar er
vonlaust að láta sér leiðast og alltaf eitthvað nýtt að sjá i hverri ferð.
Svo förum við reglulega upp í Efri Hóla í Grímsnesi þar sem foreldrar mínir eiga
sumarbústað. Það er mjög gott að fara þangað á vetrum, borða góðan mat og fá
sér dreitil af víni meðan meðan vindurinn bylur á gluggunum. Þarna unir maður sér
vel við að gera andskotann ekki neitt."
finn aftur barnslega gleði
Sigríður Ella Magnúsdóttir óperusöngkona er búsett í London, en þrátt fyrir
búsetu fjarri heimalandinu á hún alltaf fastan stað í hjörtum landa sinna. Frá
London er auðvelt að komast í hita og sól, en hver skyldi eftirlætisstaður
söngkonunnar vera?
„Hvít jól og áramót á íslandi, eru fyrir mig, sem bý erlendis, engu öðru lík. Þar
blandast saman dvöl með fjölskyldu og vinum, helgistemning, endalaus „partý"
með góðum veitingum og landið, hjúpað snjó, sem er að sjálfsögðu alltaf fagurt
og frítt. Mér finnst ég finna aftur barnslega gleði sem tengist öllu þessu, þá til-
finningu fann ég reyndar líka í janúar síðastliðnum þegar ég var á lítilli eyju, með
sjö pálmatrjám, undan ströndum Belize í Mið-Ameríku og synti þar og kafaði
meðal fiska og kóralla í hlýjum sjó. Það var sannkölluð paradís þar sem blár himinn
og blátt haf runnu saman í eitt. Endurnæring frá vetrarkuldanum í Evrópu."
SKÝ
21