Ský - 01.08.2004, Blaðsíða 34

Ský - 01.08.2004, Blaðsíða 34
■•'>•»•«»1 oí; HEILLANDIHELGARFERÐIR Roðagyllt borgarvirki. Hvítir tindar Atlasfjalla. Brúðuleikhús í Palermo. Vatíkanið. Ungverskt hand- verk. Fraegasta nautatorg Spánar. Taurus fjallgarðurinn í bláleitri móðu. Jólaljósin i Vínarborg ... Þetta er bara brot af því sem íslendingum gefst kostur á að skoða í borgarferðum Úrvals- Útsýnar í haust og vetur. Það hefur margt breyst í ferðaháttum íslendinga frá því við fylltum flugvélar í beinu flugi til Dublin fyrir fimmtán árum, þar sem Irar glöddust svo yfir komu okkar að þeir settu skilti í búðargluggana: „íslendingar velkomnirl”. SKÝ 34 Nú er öldin önnur. Dublin vissulega enn á sínum stað og ennþá eru (slendingar velkomnir þangað enda boðið upp á beint flug til borgarinn- ar. Hins vegar hefur Dublin stækkað og eflst, er orðin að stórborg og fleiri en (slendingar fylla göturnar þar á vetrarmánuðum. Borgarferðir verða sífellt vinsælli, enda kjörið tækifæri að skeppa út fyrir landsteinana í þrjá, fjóra daga, borða góðan mat og njóta menningar stórborganna. Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn er með skipulagðar ferðir til margra spenn- andi borga í haust og vetur. Þar má nefna hefðbundna aðventuferð til Vínarborgar, þar sem borgin er Ijósum skrýdd og jólabjöllur óma. Jólaglögg er selt á götum úti og jólamarkaðir eru um alla borg. Ógleym- anlegir tónleikar eru haldnir í Vínarborg og flestir sem þangað halda kjósa að upplifa allavega eina tónleika því það er upplifun sem gleymist seint. Þótt töluvert sé um að einstaklingar leggi leið sína í borgarferðir eru þær þó einkum vinsælar hjá fyrirtækjum, saumaklúbbum og í vinahópum. En hver velur hvert á að fara? Svanhildur Davíðsdóttir, sem starfar við framleiðsludeild Úrvals-Útsýnarog Helgi Eysteinsson, markaðs- og sölustjóri ferðaskrifstofunnar, fylgjast vel með því hvaða borgir heilla sem áfangastaðir í helgarferðum: „Spurning þín um hvort fimm manns sitji og fái hugmyndir er ekki alveg út í hött," segja þau. „Við fáum stundum skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir en þær ganga ekki allar upp. Það eru áhugaverðar borgir um allan heim sem vert er að heimsækja og stundum verður hugmynd sem fæðist hér aðeins skot út í loftið en oft fáum við vísbendingar frá almenn- ingi um hvert vert sé að fara. Við hlustum á hugmyndir og sérsníðum ferðir, sé þess óskað." Úrval-Útsýn hefur boðið upp á skipulagðar borgarferðir í 20 ár og eru þær reglubundinn þáttur í starfseminni: „Dublin er sívinsæl og afskaplega heppileg borg fyrir helgarferðir. Það má segja að íslendingar hafi verið brautryðjendur í þessari tegund ferðamennsku til Dublin, en nú heimsækir fólk af öllum þjóðernum borgina að vetri til." En eru tískusveiflur í ferðaháttum íslendinga? „Á vissan hátt má svara því játandi," segir Helgi. „Sólarlandaferðir á sumrin halda sínu, en breytingin er sú að þær ferðir eru orðnar styttri, ein eða tvær vikur. Þær eru yfirleitt fjölskylduferðir, en síðan fara hjón og pör í borgarferðir að hausti eða vetri. Ferðir (slendinga til útlanda eru því orðnar fleiri en áður en um leið styttri. Við bjóðum nú í haust upp á skipu- lagðar borgarferðir til nokkurra nýrra staða, sem slegið hafa í gegn. Þar ber fyrst að nefna Palermo á Sikiley, (talíu, og og svo Madrid á Spáni. Við höfðum skipulagt eina ferð til Palermo þann 18. nóvember, en sú ferð seldist upp þannig að nú höfum við bætt við annarri ferð þangað, 4. nóvember." Svanhildur þekkir Spán afar vel og hefur starfað þar sem fararstjóri. Hún heimsótti Madrid í vor, í fyrstu skipulögðu ferð Úrvals-Útsýnar þangað og segir borgina hafa komið sér gríðarlega á óvart: „Madrid er sú borg á Spáni sem íslendingar hafa ekki heimsótt mikið en hefur upp á allt að bjóða: fegurð, góðan mat og mikla menningu. Leikhús mannlífsins þar er ólýsanlegt og kaffihúsamenningin þar er ekki síðri en í Barcelona, sem íslendingar njóta þess að heimsækja." Spurð hvað það er sem geri borgarferðirnar jafnvinsælar og raun ber vitni, benda þau á augljósa kosti: „Það er hollt og gaman að sjá eitthvað nýtt, skipta um umhverfi og slappa af," svara þau. „Brjóta upp skammdegið og njóta lífsins - og stundum geta svona ferðir hreinlega verið brúðkaupsferð númer tvö sem styrkir samband hjóna og para! Kostirnir við að fara í skipulagðar borgar- ferðir eru ótvírætt þeir að þar gefst fólki kostur á að nýta tímann vel, skoða áhugaverða staði í fylgd þrautþjálfaðra fararstjóra og gista á góðum og vel staðsettum hótelum." Aðrir nýir áfangastaðir Úrvals-Útsýnar í vetur verða Tyrkland og Marokkó, sem Svanhildur og Helgi segja afar áhugaverða staði. Aðrar borgir en þær sem fyrr eru nefndar, sem boðið er upp á beint leiguflug til og eru sívinsælar, eru Róm, Búdapest, Barcelona og Vínarborg, þangað sem farið er í aðventuferð. En ef þau mættu velja sér eina ferð sjálf til að fara í - hvaða borg yrði fyrir valinu? „Ég færi til Palermo á Sikiley," segir Svanhildur án umhugsunar. „Þetta er staður sem ég þyrfti að hafa fyrir að heimsækja, byðist ekki beint leiguflug þangað. Þar á ég von á að fá þokkalega gott veður, spennandi mat og menningu og upplifa skemmtilega ítalska borg. Það mætti jafnvel segja mér að þar sé hægt að upplifa „Godfather" stemningu ...!". Helgi segist reyndar hafa áhuga á að heimsækja alla þessa staði, en hans fyrsta val væri án efa Madrid: „Spænskur matur og spænsk menning er heillandi og Madrid hefur upp á allt að bjóða. Hún sefur aldrei og þar er gott næturlíf. Það skiptir engu máli hvaða dagur vikunnar er eða hvaða tími dags, borgin iðar af mann- lífi. Madrid er staður þar sem hægt er að hafa mikla unun af að gera ekki neitt og vera afskaplega upptekinn við það.'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.