Ský - 01.08.2004, Síða 54
SKÝ
54
Siut^id af litnlliiiii...
... ÉG FANN HÖFUÐ AF STRÚTI
Hefurðu lent í því neyðarlega atviki að vera að syngja þekkt lag hástöfum og gera þér
svo ALLT OF SEINT grein fyrir því að þú ert að syngja bandvitlausan texta? Og þá oft
texta sem gefur laginu allt aðra merkingu en honum var upprunalega ætlað? Flestir
hljóta að kannast við þessa tilfinningu og hafa vonandi brugðist við með því að springa
úr hlátri frekar en að óska þess að jörðin gleypi þá sem allra fyrst. Þó er sú tilfinning
mjög skiljanleg við slíkar uppákomur. Hér á eftir fara nokkrir „misskildir” textar en við
höfum réttu textana með líka svo þetta sé nú allt saman á hreinu.
LAG: „Krummi krunkar úti"
RÉTTUR TEXTI: „Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn: Ég fann höfuð af hrúti.."
RANGUR TEXTI: „Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn: Ég fann höfuð af STRÚTI..."
LAG: „Fram í heiðanna ró"
RÉTTUR TEXTI: „Fram í heiðanna ró, fann ég bólstað og bjó..."
RANGUR TEXTI: „Fram í heiðanna ró, fann ég BÓLSTRAÐAN STÓL".
LAG: Stafrófslagið
RÉTTUR TEXTI: „ABCDEFG eftir kemur HIJK, LMN og einnig P, ætli ég Q þar standi hjá."
RANGUR TEXTI: „ABCDEFG, eftir kemur HIJK, ELLEFU MENN OG EINNIG FÉ, ÆTLI ÉG KÚ ÞAR STANDI HJÁ"
LAG: „Gleðibankinn" eftir Magnús Eiríksson
RÉTTUR TEXTI: „...þú leggur ekki inn í Gleðibankann tóman blús"
RANGUR TEXTI: „...þú leggur ekki inn í Gleðibankann TÓMA KRÚS"
OG SVO ER HÉR EITT MISSKILDASTA LAG (SLENSKRAR TÓNLISTARSÖGU, HELD ÉG:
LAG: „Kanína" með Sálinni hans Jóns míns
RÉTTURTEXTI: „Hey, kanína, nananananana..."
RANGUR TEXTI: „FEITA NÍNA, nananannana"
Einnig: „HAUKA N(NA, nananana"
Einnig: „HEITA NÍNA, nananananana..."
Einnig: „AUKALÍNA, nananananana..."
LAG: „Stína var lítil" með Lummunum
RÉTTUR TEXTI: „...samt gat hún Stína, söngvana sína, sungið með hárri raust."
RANGUR TEXTI: „...samt gat hún Stína, söngvana sína, sungið með HÁRIÐ LAUST
LAG: „Komdu með" með HLH-flokknum og Siggu Beinteins
RÉTTUR TEXTI: „Ég sá hana í horninu á Mánabar, hún minnti mig á Brendu Lee.."
RANGUR TEXTI: „Ég sá hana í hominu á Mánabar, hún minnti mig á BRENNIVÍN"
LAG: „Lífið er lag" með Módel
RÉTTUR TEXTI: „Svo birtist þú og lífið fékk tilgang að r
Rangur texti: „Svo birtist þú og lífið fékk 5,9..."
LAG: „Ég þekki þig" með Sálinni
RÉTTUR TEXTI: „Ég þekki þig og þínar langanir..."
RANGUR TEXTI: „Ég þekki þig og ÞÍNA LANGÖMMU.."
LAG: „Fram fram fylking"
RÉTTUR TEXTI: „...forðum okkur hættu frá, því ræningjar oss vilja ráðast á..
RANGUR TEXTI: „...forðum okkur hættu frá því RÆNINGJAHROSS vilja ráð
LAG: íslenski þjóðsöngurinn Matthías Jochumson
RÉTTUR TEXTI: „...sem tilbiður guð sinn og deyr..."
RANGUR TEXTI: „... sem tilbiður guð, SIGURGEIR *
LAG: „Auður" með Sálinni Hans Jóns Míns
RÉTTUR TEXTI: ...„enginn nær í rekkjunaut eftir klukkan þrjú..."
RANGUR TEXTI: „...enginn nær í EFTIRLAUN eftir klukkan þrjú..."
LAG: „Á miðri leið" með SSSól
RÉTTUR TEXTI: „... og síðan hittumst við aftur á miðri leið."
RANGUR TEXTI: ,,..og síðan hittumst við aftur á MIÐVIKUDAG"
'Pað uerður kann&ki seint&agtwn Lízellu aá tiún d&ki aá &yngja,
en fíún filu&tarþeim mun hetar...