Ský - 01.09.2005, Síða 5
Pistill
Gæti það gerst hér?
Að undanförnu hafa okkur borist ógnarfréttir utan úr heimi.
Fellibylurinn Katrín hefur valdið hörmungum sem eru fáheyrðar
á Vesturlöndum. Hundruð þúsunda eru heimilislaus og mesta
stórveldi heims stendur hjálparvana gegn náttúrunni. Hryðju-
verkamenn í London bönuðu tugum manna í tilgangslausum
sprengingum. Þeir segjast vera í stríði, en það stríð er einhliða því
að borgararnir vita ekki af því að einhver hyggist ráðast á þá og
geta því ekki varið hendur sínar.
Hvorugar hamfarirnar eru einstakar. Flóðbylgjan í Asíu var miklu
mannskæðari en Katrín. Daglega eru sprengingar í Irak sem deyða
og limlesta saklaust fólk. Það sem ýtir við okkur íslendingum er að
hörmungarnar hafa færst nær. Stór hluti manna í viðskiptalífinu
þrammar oftar um miðbæ Lundúna en Austurstrætið. Þúsundir
Islendinga fara á ári hverju til Flórída að ströndum Mexíkóflóa, en
New Orleans stendur einmitt við norðurhluta flóans. Við vöknum
upp við það að meðal fórnarlambanna hefði getað verið fólkið í
næsta húsi við okkur. En gæti slíkt gerst á íslandi?
Hér í blaðinu er viðtal við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra um
það hvernig koma megi í veg fyrir hryðjuverk. Við höfum þegar
kynnst því að mótmælendur hafa í nafni málstaðarins slett skyri á
ráðstefnugesti, málað byggingar og ráðist á fána á stjórnarráðinu.
Eftirá eru gerendur svo hinir hortugustu og segja tilganginn helga
meðalið. Hvenær kemur að því að slíkir einstaklingar telja sig geta
ráðist á samborgara sína til þess að kenna stjórnvöldum lexíu?
Islendingar hafa ekki farið varhluta af náttúruhamförum. Snjóflóð
á Vestfjörðum eru öllum enn í fersku minni og eldgosið í Heimaey
setti mörg þúsund manna byggð í stórhættu. Við getum ekki sigrað
náttúruöflin, en við getum búið okkur undir baráttuna við þau.
Snjóflóðavarnir hafa verið settar upp víða um land. Þessa
dagana er verið að undirbúa byggingu hátæknisjúkrahúss, en
eigum við áætlanir um það hvernig við er brugðist ef landið verður
rafmagnslaust, eða ef vatn hverfur vikum saman af höfuðborgar-
svæðinu? Myndirnar frá New Orleans færa okkur heim sanninn
um það hve ýmsar þarfir okkar geta orðið fáfengilegar þegar
veröldin öll færist í kaf. Menn tapa aleigunni og geta ekki sinnt
brýnustu þörfum. Þjóðfélaginu ber að búa sig undir ólíkleg áföll,
bæði til þess að reyna að koma í veg fyrir þau og til þess að geta
brugðist fljótt og rétt við ef þau verða.
qHii
Útgefandi:
Heimur hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Benedikt Jóhannesson
og Jón G. Hauksson
Útlitshönnun:
Heimur hf.
Ljósmyndir:
Páll Stefánsson,
Geir Ólafsson og fl.
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir,
Geir A. Guðsteinsson,
Hilmar Karlsson,
Hrund Hauksdóttir,
Sigurður Bogi Sævarsson.
Auglýsingastjóri:
Vilhjálmur Kjartansson
Prentun:
Oddi hf.
Heimur hf. - Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Heimur hf.
Borgartúni 23
105 Reykjavík.
Sími: 512-7575
Benedikt Jóhannesson