Ský - 01.09.2005, Síða 12
í London og gríp stundum til þess. Ég er
alls ekki hrifin af eróbiklátum," segir hún
hlæjandi, „Það er ekki minn stíll."
Hvernig er að vera sjálfstætt starfandi leik-
kona?
„Það er fínt. Ég var fastráðin í Þjóðleikhús-
inu til margra ára og það hafði auðvitað
sína kosti, sem fólust einna helst í atvinnu-
öryggi. í dag finnst mér mjög gott og spen-
nandi að hafa val um hvers konar verkefni
ég tekst á hendur. Ég er með ýmsar góðar
hugmyndir í kollinum."
Líf leikarans hlýtur að vera að mörgu leyti
ólíkt okkar hinna, áhorfendanna?
„Já, að sumu leyti. Ég fer til dæmis ekki
upp í rúm að sofa um miðnætti eins og
langflest vinnandi fólk! Jafnvel þótt maður
finni fyrir mikilli þreytu eftir sýningu tekur
talsverðan tíma að róast og ná slökun fyrir
svefninn, sem hefst um miðja nótt.
Leikarar verða líka veikir og lenda í
áföllum eins og aðrar starfstéttir en við
þurfum að mæta á sviðið til í slaginn án
þess að láta deigan síga. Ég hef lent í slíkri
stöðu, að finna svo til í hjartanu að ég var
sannfærð um að allir hlytu að sjá það. En
það upplifði víst enginn eins og ég. Leikar-
inn leggur daglegt líf til hliðar meðan hann
er á sviðinu. Það er ekkert um annað að
ræða. Og svo óhjákvæmilega missir maður
auðvitað af ýmsum skemmtunum eins
og matarboðum. Mitt fólk er orðið vant
viðkvæðinu: „Ég kem klukkan 11!" Það er
hægt að venjast þessu öllu saman," segir
Kabarettkonan hugsandi en bætir svo við:
„Ég verð reyndar alltaf aðeins stressuð fyrir
sýningar en það er bara hollt og ég vona
að þannig verði það alltaf. Það er nefnilega
mjög gott að fá adrenalínkikk ..."
Það er óhætt að segja að áhorfendur
Kabaretts fá líka heilmikið adrenalínkikk
á sýningunni, rétt eins Þórunn Lárusdóttir.
Kabarett er skemmtileg og súrsæt sýning
með vel heppnaðri leikmynd og frábærum
tónlistarflutningi. Þar er líf og fjör á sviðinu
en ógnin er yfirvofandi í bakgrunninum.
Lífið er nefnilega ekki bara Kabarett...
E3
ský 12
„LEIKARAR VERÐA LÍKA VEIKIR OG, LENDA í ÁFÖLLUM
EINS OG AÐRAR STARFSTÉTTIR eI VIÐ ÞURFUM AO
MÆTA Á SVIÐIÐ TIL f SLAGINN^N ÞESS AÐ LÁTA
DEIGAN SÍGA." f
y
f