Ský - 01.09.2005, Blaðsíða 54
Hús í sveit
Mér opnast
heilu heimarnir
- Sjón situr við ritstörf á Eyrarbakka
„Þótt húsið sé lítið er það býsna rúmgott þegar inn er komið.
Engum ofsögum er sagt að þar opnist mér á stundum heilu
heimarnir. Enda hefur það gefist mér vel að fara austur til að
skrifa og geta síðan labbað út á kaffihús eftir stífan vinnu-
dag," segir rithöfundurinn Sjón. Fimm ár eru liðin síðan Sjón
og eiginkona hans, Ásgerður Júníusdóttir, keyptu sér lítið hús
austur á Eyrarbakka, en þá höfðu þau um nokkurn tíma leitað
sér að skemmtilegum dvalarstað úti á landi, þó ekki mjög fjarri
Reykjavík.
Með sirkli á landakortið
„Við getum sagt að við höfum dregið hring með sirkli á landa-
kortið einhverja 100 til 200 kílómetra frá Reykjavík," segir Sjón.
„I vestri settum við mörkin við Stykkishólm og svipuðumst líka
um hér fyrir austan fjall. Þegar tengdamóðir mín rakst svo í
Morgunblaðinu á lítið fallegt hús á Eyrarbakka var sem við hefð-
um himin höndum tekið. Við vorum ekki lengi að hugsa okkur
um og keyptum húsið."
Húsið góða á Eyrarbakka er um öOfermetrar og er vestarlega
í þorpinu, í svonefndu Skúmstaðahverfi. Það er byggt árið 1910
og heitir Inghóll og má ætla að það dragi heiti sitt af hábungu
Ingólfsfjalls, sem sést
vel neðan af ströndinni.
„Sá sem við keyptum
húsið af stóð ekki á
sama hvað nýireigendur
hygðust fyrir. Hann vildi
sem minnstar breyting-
ar og þegar við höfðum
skoðað húsið og kynnst
seið þess fannst okkur
slíkt líka alveg fráleitt. Allt
innanstokks er upprunalegt, til að mynda panellinn á veggjunum
sem er upprunalegur; skakkur og fallega undinn."
Heilir og óskiptir
Síðustu bækur Sjóns eru Með titrandi tár frá 2001 og Skugga-
baldur sem kom út tveimur árum síðar. Fyrir þá síðarnefndu
fékk Sjón Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs snemma á
þessu ári. Þessar tvær bækur skrifaði Sjón að miklu leyti aust-
ur á Eyrarbakka, sem sannar að loftið þar er andríkt og gefur
mönnum grið til að sinna skáldskapnum heilir og óskiptir.
„Við erum á Bakkanum
nánast allt sumarið og
flestar helgar yfir veturinn
förum við austur. Þetta
nýtist okkur báðum mjög
vel. í sumar hélt eiginkona
mín tónleika í Skálholti og
hafði þá gott næði til að
æfa sig. Því erum við nú
líka komin með hljóðfæri
í húsið, píanóið sem var
lengi í Læknishúsinu
svonefnda þarna á Eyr-
arbakka. Því má segja að
fyrir austan séum við með
allt til alls." C3
ský 54