Ský - 01.12.2013, Síða 6

Ský - 01.12.2013, Síða 6
Útgefandi: Heimur hf. - Öll réttindi áskilin. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Benedikt Jóhannesson og Jón G. Hauksson. Útlitshönnun: Ágústa Ragnarsdóttir - Argh ehf. Ljósmyndir: Geir Ólafsson, Páll Stefánsson, Páll Kjartansson o.fl. Blaðamenn/greinarhöfundar: Brynhildur Björnsdóttir, Eirik Sördal, Erla Gunnarsdóttir, Glsli Kristjánsson, Hilmar Karlsson, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Ragnheiður Þórdís Gylfadóttir, Solveig Jónsdóttir, Svava Jónsdóttir og Vigdís Stefánsdóttir. Auglýsingastjóri: Inga Halldórsdóttir. Prentun: (safoldarprentsmiðja hf. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Heimur hf. Borgartúni 23,105 Reykjavlk. Slmi: 512-7575. Tilgangur lífsins egar dagur er stystur gefst lengri tími en ella til heimspekilegra vangaveltna. Hver er tilgangur lífsins? Er allt stritið til þess eins að fylla upp í tímann milli fyrsta og síðasta andartaks í lífi sérhvers manns? Engir hafa lifað jafnmikla breytingatíma og þeir sem nú lifa. Erum við hamingjusamari núna en forfeður okkar voru? Þórbergur Þórðarson skrifaði á sínum tíma um dýrkunina á fátækt listamanna. Af einhverjum ástæðum töldu margir að kröpp kjör væru beinlínis forsenda þess að listamenn gætu þroskast og náð árangri. Þórbergur dró þessa kenningu sundur og saman í háði. Öðru hvoru lýsa rómantískir hugsjónamenn því yfir að Islendingum hafi liðið miklu betur í torfkofunum en í sterílum steinkumböldum nútímans. í mörgum leynist lítill Rousseau, sem hélt því fram að við ættum að hverfa aftur til náttúrunnar. Samt vekur það ekki sérstaka hrifningu þegar náttúran kemur í heimsókn til okkar í formi myglusveppa sem leggja heilar fjölskyldur í einelti. Allir auglýsa að þeirra framleiðsla sé „hrein náttúruafurð". En í náttúrunni eru margar eitraðar plöntur sem geta gert út af við fílhraust fólk í fyrsta munnbita. Læknisfræðinni fleygir fram, en ýmsir sjúkdómar eru miklu algengari nú en áður, til dæmis ofnæmi af ýmsu tagi. Kannski er áreitið nú annað og meira en áður, alls kyns gerviefni eru nú hluti af okkar umhverfi, efni sem ekki voru til fyrir nokkrum áratugum. Ef til vill er ástæðan einmitt öfug, áreitið er miklu minna en það var í gömlu torfbæjunum þegar menn og dýr bjuggu í nánu sambýli og skrúbbar og klórefni voru ekki stöðugt á lofti. Tölvurnar verða sífellt stærri, smærri og hraðvirkari. Sífellt koma fram ný og fullkomnari forrit. Hvernig stendur þá á því að þrátt fyrir allar þær upplýsingar sem fyrir lágu og alla þá reiknigetu og þekkingu sem menn búa nú yfir varð einhver mesta kreppa sem um getur í sögunni af mannavöldum? Getur verið að við höfum ekki yfir að búa þeirri visku sem við héldum? Eða fara dómgreind og greind ekki alltaf saman? Einhvern tíma hefði sérhvert fermingarbarn vitað hver það væri sem vissi allt og væri alls staðar nálægur. Nú á tímum myndu margir væntanlega telja að það væru Gúgúll og Þjóðaröryggisráð Bandaríkjanna. Við hljótum að spyrja hvort þekkingin sé alls staðar til góðs. Afi minn var vinnusamur maður. Einhverju sinni var sonur hans að hneykslast á því að menn væru að taka sér frí í stað þess að vera í vinnunni og hefur eflaust haldið að sú skoðun félli vel í kramið. En þá svaraði afi: Tilpess erum við nú að puða að geta notið lífsins inn d milli. Benedikt Jóhannessott 6 SKÝ 6. tbl. 2013

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.