Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 39
AUGNHEILSA
Helga Kristinsdóttir sjóntækjafræðingur.
EYESLAND í GLÆSIBÆ:
FRÁBÆRT ÚRVAL
OG GOTT VERD
Gleraugnaverslunin Eyesland ertil húsa á 5. hæð í Glæsibæ.
Staðsetningin er óvanaleg, verðið er frábært og úrvalið sennilega hið
mesta á landinu.
TEXTI: VIGDÍS STEFÁNSDÓTTIR
Úrvalið hjá Eyesland er gífurlegt og væntanlega hið mesta á landinu á einum stað.
Okkar mottó er að aUir eigi skilið góð
gleraugu og að sjá eins vel og hægt
er,“ segir Helga Kristinsdóttir
sjóntækjafræðingur sem lærði í Þýskalandi
og er einn eigenda Eyesland gleraugnaversl-
unar. „Það á ekki að vera munaður að eiga
góð gleraugu og því stiilum við verðinu í hóf
eins og hægt er,“ bætir hún við.
Eyesland hefur verið starfrækt í rúm þrjú
ár og hefur á þeim tíma getið sér gott orð.
Fyrirtækið fer nýjar og óhefðbundnar leiðir
í vöruvali og keypt m.a. frá Bandaríkjunum
og Asíu en einnig frá Evrópu. „Við höfum
náð að halda verðinu mjög vel niðri með
þessum innkaupum,“ segir Helga. „Það eru
dæmi um að fólk kaupi þrenn gleraugu fýrir
verð einna. Fyrir þá sem vilja eiga gleraugu
til skiptanna er þetta mikilvægt. Ekki síst
fyrir ungt fólk sem gjarnan vill geta átt
nokkur gleraugu, gjarnan með mjög mis-
munandi hönnun. Meira að segja marg-
skiptu gleraugun eru ódýr og dæmi um verð
þá er það t.d. umgjörð + gler allt niður í
23-25.000 þúsund kr. Við erum líka með
Reykjavik Eyes og Ray Ban umgjarðir svo
eitthvað sé nefnt og auðvitað er merkjavaran
dálítið dýrari.
MARGAR GERÐIR GLERAUGNA
Urvalið hjá Eyesland er gífurlegt og væntan-
lega hið mesta á landinu á einum stað. Helga
segir það sérstaklega ánægjulegt að sjá fólk
labba út með nokkrar gerðir gleraugna;
margskipt sólgleraugu, lesgleraugu og jafnvel
tölvugleraugu.
„Margir átta sig ekki á því að það þarf
önnur gleraugu við tölvuvinnu en lestur,"
segir hún. „Það er ekki sami styrkur í
lesgleraugum og tölvugleraugum en fólk sem
situr daglangt yfir tölvuskjá þarf oft slík
gleraugu. Það þarf að vera afslappað að horfa
á skjáinn svo fólk þreytist ekki.“
BÖRNIN
Gleraugu fyrir börn þurfa að passa sérstak-
lega vel og mega ekki vera þung. Þetta á
ekki síst við um krakka sem stunda íþróttir
en þeirra gleraugu þurfa að þola högg og
hnjask og sitja vel og þétt á höfðinu. Þetta
gildir auðvitað líka um íþróttagleraugu fyrir
fullorðna en Eyesland er með gott úrval af
íþróttaumgjörðum. „Við höfum líka sérhæft
okkur í linsum fyrir fólk sem hefur á ein-
hvern hátt óvanalega sjón,“ segir Helga.
„Linsurnar geta verið einfaldar og marg-
skiptar eftir þörfúm hvers og eins. Við erum
líka með alls konar aðrar vörur eins og
leppa með ýmsum mynstrum, gleraugna-
hulstur í úrvali, hreinsiúða með blautklútum
og svo vörur sem snúa beint að augnheilsu.
Þar má nefna augnvítamín, gel og gervitár
fyrir þá sem eru með augnþurrk en hann
getur verið afar óþægilegur. Ekki má
gleyma hjálpartækjunum sem eru m.a.
ýmiskonar stækkunargler, stækkunar-
lampar og ljós.“
Yfirleitt er hægt að fá tíma samdægurs eða
daginn eftir. „Við leggjum áherslu á að veita
góða þjónustu og er hún eitt af þeim atriðum
sem skipta mestu máli,“ segir Helga.
Verslunin er opin frá 8.30 til 17.00 alla virka
daga og auðvelt er að skoða úrvalið eða fá
upplýsingar á heimasíðunni okkar,
www.eyesland.is. SKV
„Við höfum náð að halda verðinu mjög vel niðri
með þessum innkaupum,“ segir Helga Kristinsdóttir
sjóntækjafræðingur. „Það eru dæmi um að fólk kaupi
þrenn gleraugu hjá okkur fyrir verð einna.“
6. tbl. 2013 SKÝ 39