Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 42
Gamla sjúkrahúsið á ísafirði setur mikinn svip á bæinn. Það var vígt 1925, byggt eftir
teikningu Guðjóns Samúelssonar. I dag hýsir það bókasafn og skjalasafn og er sérlega
lifandi og skemmtilegur staður.
Faktorshúsið í Neðstakaupstað.
ÞAR SEM
ISAFJORÐUR:
GAMLI TÍMINN
LIFIR
Neðst á eyrinni á ísafirði stendur eina samstæða þyrping verslunarhúsa á íslandi sem varðveist hefur
frá tímum danskrar einokunar. Framsýni fáeinna heimamanna og þrautseigja varð til þess að þau voru ekki rifin
heldur endurgerð af stakri vandvirkni og eru einn helsti fjársjóður og aðdráttarafl ísafjarðar í dag.
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
S
asanum við uppbyggingu hins nýja
Islands á tuttugustu öld varð margt
gamalla húsa og minja framkvæmda-
gleðinni að bráð. Jarðýtutennur sléttuðu út
húsarústir landnámsmanna til sveita og
ruddu torfbæjum ofan í svörð. I kaupstöðum
voru funir húshjallar rifnir og brenndir og ný
hús steypt upp á auga-lifandi bragði. Gamlir
bátar voru dregnir á áramótabrennur og
eldur lagður í gömul hús í æfmgaskyni fyrir
slökkvilið. Nútíminn var mættur á staðinn og
enginn tími til þess að velta því fyrir sér
hvort nýtt væri undantekningarlaust betra en
gamalt.
A seinni hluta tuttugustu aldar fór að ryðja
sér til rúms sú hugsun að gömul hús gætu
verið verðmætar minjar þótt þau væru ekki
beinlínis fornleifar í hefðbundinni merkingu
orðsins. Víða í þéttbýli reis andóf gegn
stjórnlausu niðurrifi og eflaust minnast
margir deilna og átaka kringum förgun eða
varðveislu húsanna við Lækjargötu í Reykja-
vík sem almennt eru kölluð Bernhöftstorfan.
Þeirri orustu lauk með sigri friðunarsinna en
margar aðrar orustur töpuðust.
Utan Reykjavíkur var ekki um auðugan
garð að gresja eftir gömlum húsum með sál
og sögu. En á nokkrum fornum verslunar-
stöðum stóðu langt fram á 20. öld gömul
pakkhús og verslunarhús sem fólu Islands-
söguna í funum þiljum og tjörguðum
bitum.
Einn þessara staða er Isafjörður sem fékk
kaupstaðarréttindi 1786 um leið og Reykja-
vík og Grundarfjörður. Á Isafirði stóð enn í
lok 20. aldarinnar þyrping af fornum versl-
unarhúsum þar sem heitir frá fornu fari
Neðstikaupstaður. Elst þeirra húsa sem þar
standa er krambúð einokunarverslunarinnar
firá 1757, íbúðarhús faktorsins, byggt 1765,
Tjöruhúsið, byggt 1781 ogTumhúsið, byggt
1784.1 þessum húsum var starfrækt verslun í
eigu dönsku einokunarverslunarinnar til
1788 en eftir það í eigu ýmissa erlendra
kaupmanna til 1883 þegar Ásgeirsverslun á
Isafirði tókvið rekstrinum. Þegar kom fram á
áttunda áratug aldarinnar vom gömlu versl-
unarhúsin í Neðsta farin að láta töluvert á sjá.
Hin hljóðu eyðingaröfl unnu starf sitt hægt
og örugglega og gömlu húsin biðu örlaga
sinna með iðandi athafnalíf hafnarinnar á
aðra hönd og brambolt og suðuglampa
skipasmíðastöðvar Marselh'usar á hina.
Nútíminn var löngu kominn á Eyrina eins
og annars staðar þótt tíminn stæði í stað
innan veggja hinna öldnu húsa.
FÚNIR HÚSKOFAR EÐA FJÁRSJÓÐUR
Á áttunda áratugnum var þessi látlausa
húsaþyrping í eigu Hafnarsjóðs Isafjarðar og
þótt eitt og annað væri geymt í hinum fornu
húsum þá höfðu þau ekkert sérstakt hlutverk.
Ef gerð hefði verið könnun á viðhorfum
bæjarbúa á þessum tíma er ekki víst á hvern
veg afstaða þeirra til verndunar eða förgunar
húsanna hefði fallið. Sú skoðun að þessir
gömlu húskofar tepptu mikilvægar bygging-
arlóðir átti víða hljómgrunn og duglegir
athafnamenn voru þá eins og nú ávallt reiðu-
búnir með jarðýtuna og gröfuna.
En meðal áhrifamanna í bænum áttu
gömlu húsin í Neðstakaupstað vini og vel-
unnara sem gerðu sér skýra grein fyrir því að
þarna á eyraroddanum var fjársjóður sem óx
að verðgildi með hverju ári sem leið án þess
að honum væri fargað.
Árið 1975 steig bæjarstjórn ísafjarðar
fyrstu skrefin í átt til friðunar en þá voru
verslunarhúsin í Neðstakaupstað og íbúða-
húsið í Hæstakaupstað friðuð til þess að
forða þeim frá eyðileggingu.Tveimur árum
síðan hófst svo viðgerð Faktorshússins í
Neðstakaupstað en það var verst farið. Það
var svo 1978 sem komið var á laggirnar sér-
stakri húsafriðunarnefnd á ísafirði.
MEÐ RISAVERKEFNI í FANGINU
Bæjarstjórnin fól húsafriðunarnefndinni að
annast framkvæmd viðgerða á friðuðum
húsum. Nefndinni var einnig falið að afla fjár
42 SKÝ 6. tbl. 2013