Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 21
og dáist að frumlegum leikjum hans. Skák-
maður þarf á góðu minni að halda en hann
verður líka að búa yfir frumlegri hugsun.
HVOR SIGRAR? ÞAÐ GERI ÉG!
Seinna sinnið sem ég talaði við Magnús
var skömmu fyrir heimsmeistaramótið á
Indlandi í haust. Hann var boðinn í klúbb
erlendra fréttamanna í Osló að ræða málin
og fékk allar þessar venjulegu spurningar
um stelpur og hvort hann færi út að
skemmta sér. Hann bara hló.
Núna var hann orðinn fimm árum eldri
en í fyrra sinnið, sem hann kom í klúbb-
inn. Sjálfsöruggur en samt hógvær. Faðir
hans var enn með honum en sagði nú
ekkert. Strákurinn var orðinn sjóaður í að
svara spurningum sjálfur og virtist full-
komlega afslappaður - sigurviss.
Þegar hann var beðinn að spá fyrir um
hvor sigraði svaraði hann einfaldlega: Það
geri ég! Og svo hló hann.
Samanburðurinn við Fischer á bara við
um stöðu mannanna á skákborðinu.
Magnús man og sér fyrir sér stöður í
skákum Fischers. En hann er allt önnur
manngerð en bandaríska skákséníið.
Magnús er yfirvegaður, rólegur og full-
komlega í andlegu jafnvægi. Það var
Fischer ekki. Óttinn við ofsóknir virðist
hafa fylgt Fischer alla tíð.
METINGUR HAGKERFA
Það er líka annað undir í heimi skákar-
innar þegar Fischer var á toppnum. Bæði
Magnús og Anand fundu auðvitað fyrir
kröfum þjóða sinna um sigur. En það var
ekki síður þjóðleg sigurgleði sem hékk á
spýtunni.
Þegar einvígi aldarinnar var háð í
Laugardalshölinni 1972 var kalt stríð milli
stórvelda heimsins, Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna. Þar var ekki bara um
stórhættulegt vígbúnaðarkapphlaup að
ræða. Metingurinn milli hagkerfa stór-
veldanna var í forgrunni.
Metingurinn komst í algleyming þegar
Nikita Khrústsjov varð aðalritari og æðst-
ráðandi í Sovét. Hann var áróðursmaður
umfram fyrirrennara sína í Kreml.
Ævisöguritarar hans hafa sagt að saman-
burðurinn við Bandaríkin hafi smátt og
smátt mótað alla stefnu hans. Hann vildi
skáka kapítalistunum á þeirra eigin
heimavelli - í hagvexti og ekki síst lífskjör-
um almennings.
Khrústsjov sagði: Við stöndum ekki bara
Vesturveldunum jafnfætis í vígbúnaði
heldur erum við að ná sama stigi í velmeg-
un, tækni og framleiðslu á neysluvarningi.
Allt byggðist þetta raunar á ósannindum
en það er önnur saga.
ÍSSKÁPAR OG SPÚTNÍK
Metingurinn um gæði bíla og ísskápa,
fjölda sjónvarpa miðað við höfðatölu og
hagvöxt varð ekki minna virði en fjöldi
mkjarnaodda. Bandaríkjamenn vissu ekki í
fyrstu af þessari keppni og voru seinir til
að svara.
Sovetríkin byrjuðu á að skora grimmt:
Spútnik, hundurinn Læka, Júrí Gagarín.
Allt í einu var staðan 3-0 og ekki tveir
áratugir liðnir frá stíðslokum. Kúbudeilan
markaði hápunkt hernaðarkapphlaupsins
en metingurinn hélt áfram.
Fólk um allan heim deildi um hvor væri
fremri, Kaninn eða Rússinn. Unglingar í
íslenskum skólum deildu um gæði vörunn-
ar að austan og vestan. I Sovétríkjunum
6. tbl. 2013 SKÝ 21