Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 49
hver af mörgum tökustöðum myndarinnar
honum hafi þótt skemmtilegastur þá svaraði
hann án hiks: „Island. Það var eins og að
vera á tunglinu. fsland er ótrúlegur staður
með sínum snævi þöktu tindum og eld-
fjöllum."
Frami Chris Hemsworth hefurverið
snöggur í Hollywood og hann virðist geta
slitið sig frá hetjuhlutverkunum og er
skemmst að minnast leiks hans í hinni ágætu
kvikmynd Ron Howards, Rush, þar sem hann
leikur Formúlu 1 kappann, James Hunt. Sá
fór illa með sig, endaði ævina í dópi og víni
innan um fagrar konur. I Rush sýnir Chris
Hemsworth að hann er ekki aðeins fjall-
myndarlegur heldur einnig góður leikari.
SJÓNVARPSLEIKARI í ÁSTRALÍU
Chris Hemsworth er þrítugur, fæddist í
Melbourne í Ástralíu 11. ágúst 1983. Þegar
hann vakti fyrst athygli í Bandaríkjunum í
Star Trek (2009) var hann einn af þekktustu
sjónvarpsleikurum í Ástralíu. Það var ein
vinsælasta sápuópera Ástrala, Home and
Away, sem kom honum á kortið, en hann
hóf leik í henni 2004 og hætti 2007. Þessi
sama sjónvarpssería átti einnig þátt í frama
Heath Ledgers, Naomi Watts, Simon Bakers
og Isla Fisher, sem öll urðu þekktir leikarar
eftir leik sinn í seríunni.
Hlutverk Chris Hemsworth í Star Trek var
ekki stórt en hann kom fram í upphafi sem
faðir James T. Kirk. í kjölfarið eignaðist hann
sterkan aðdáendahóp sem vildi sjá meira af
honum og sem betur fer fyrir Hemsworth
tóku innanbúðarmenn í Hollywood einnig
eftir honum. Hemsworth lék eitt aðalhlut-
verkið í hryllingsmyndinni The Cabin in the
Wood, en sú kvikmynd sat uppi í hillum
MGM fyrirtækisins í þrjú ár og var ekki dreift
fyrr en í fyrra, í kjölfar vinsælda Thors.
Þegar kom að Thor var hann alls ekki fyrsti
kosturinn sem leikstjóri myndarinnar Kenneth
Branagh vildi í hlutverkið. Branagh vildi
Daniel Craig, sem ekki gaf kost á sér. Eftir
fyrsta upplestur fyrir hlutverkið var Hems-
worth tjáð að hann kæmi ekki til greina, en
Branagh sá eitthvað í stráknum sem honum
líkaði, gaf honum annað tækifæri og þá stóð
hann sig betur og fékk hlutverkið. Þess má
svo geta að einn helsti keppinautur Hems-
worth um hlutverk Þórs var yngri bróðir
hans Liam.
Thor: The Dark World er önnur kvikmynd-
in í seríunni um ofurmennið Þór, en í þriðja
sinn sem Chris Hemsworth bregður sér í
hlutverkið, Þór var nefnilega ein afofurhetj-
unum í The Avengers (2012) þar sem voru
1. Þekktastur er Chris
Hemsworth fyrir að leika þrumuguðinn Þór í
tveimur kvikmyndum sem notið hafa mikilla
vinsælda.
einnig til staðar Iron Man (Robert Downey
jr.), Captain America (Chris Evans), Hulk
(Mark Ruffalo) og Black Widow (Scarlett
Johansson). I fyrra lék Chris Hemsworth
einnig í annarri stórmynd, Snow White and
the Huntsman, ævintýramynd sem óvænt
sló í gegn. Þar var mótleikkona hans önnur
smávaxin leikkona, Kristen Stewart. Fjórða
kvikmynd Hemsworth frá 2012 er svo Red
Dawn sem fékk ekki eins góðar viðtökur en
hún fjallar um hóp ungs fólks sem bjargar
heimaborg sinni frá innrás hermanna
Norður-Kóreu. Eins var með Red Dawn og
The Cabin in the Wood. Hún var í geymslu í
ein tvö ár áður en henni var dreift í kvik-
myndahús.
Næsta kvikmynd Chris Hemsworth er
Cyber, sem Michael Mann leikstýrir, hún
fjallar um sveit Bandaríkjamanna og Kínverja
sem elta uppi þá sem hakka sig inn í tölvu-
kerfi. Þrjár aðrar kvikmyndir sem Hemsworth
mun leika í eru á framleiðslustigi. Fyrst ber að
telja Avengers 2 þar sem hann bregður sér
enn eina ferðina í hlutverk Þórs. Þessa
dagana er hann að leika í In the Heart ofthe
Sea, sem Ron Howard leikstýrir og gerist um
borð í hvalveiðiskipi árið 1820. Framundan er
svo einnig Snow White and the Huntsman 2.
Áætlað er að frumsýna þær myndir 2015.
Chris Hemsworth hefur ekki verið laus við
dramatíska atburði í einkalífinu frekar en í
kvikmyndum sínum og nýjustu fréttir af
honum eru þær að hann og fjölskyldan lentu
í hremmingum síðla í nóvember við strendur
Spánar þegar hann var í stuttu fríi frá tökum
á In the Heart ofthe Sea. Hann var í
skemmtireisu á skútu ásamt ófrískri
eiginkonu sinni og barni þegar skútan varð
stjórnlaus og rak að ströndinni. Þurfti
strandgæslan að bjarga þeim ásamtfimm
öðrum farþegum.
LEIKARABRÆÐUR
Hvað varðar draumahlutverk segist Hems-
worth alveg vera til í að leika í næstu Star
Wars kvikmyndum sem verið er að undirbúa
um þessar mundir, hann hafi alist upp við
eldri Star Wars myndirnar og þær átt stóran
þátt í áhuga hans á kvikmyndum. Og þær
myndir sem hann hefði helst viljað vera með
í eru Hringadróttins saga og Hobbit mynd-
irnar. „Eg dýrka veröldina sem þær gerast í
og hefði gefið mikið til að fá að vera með."
Chris Hemsworth á tvo bræður sem
einnig eru leikarar. Elstur er Luke
Hemsworth, sem heldur sig á heimavelli í
Ástralíu og er vinsæll sjónvarpsleikari,
næstur er Chris og yngstur er Liam Hems-
worth, sjö árum yngri en Chris og þekktastur
2. Chris Hemsworth með dóttur sína Indiu Rose
í fanginu.
3. Chris Hemsworth hefur fengið prýðisdóma
fyrir leik sinn í hlutverki kappaksturshetjunnar
James Hunt í Rush.
fyrir leik í Hunger Games myndunum og
einnig fyrir að hafa verið kærasti Miley
Cyrus. Það samband er þó víst búið og að
sögn kunnugra var Chris honum stoð og
stytta í sambandsslitunum.
Eiginkona Chris Hemsworth er spænska
leikkonan Elsa Pataky og eiga þau eina
dóttur, Indiu Rose, sem er rúmlega árs-
gömul og von er á öðru barni. Chris og Elsa
kynntust um mitt ár 2010 og giftu sig í
desember sama ár. Áður hafði lítið farið fyrir
Hemsworth á stefnumótamarkaðinum í
Hollywood og er aðeins nefnd til sögunnar
ein kærasta, leikkonan Isabel Lucas, en þau
unnu saman í Home and Away og léku bæði
í Red Dawn. í dag segist Hemsworth vera
kominn á réttan stall í lífinu. „Ég hef aldrei
haft eins mikið að gera, en ég gleymi ekki
foreldrahlutverkinu sem ég tel það mikil-
vægasta í lífinu. Það kallar á barnið í mér og
gerir mig að betri persónu." SKV
e.tbi. 2013 SKÝ 49