Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 19
Magnúsi er lýst sem ósköp venjulegum manni. Hann virðist þó búa yfir óvenjulegum hæfileikum.
bar engin merki um snilligáfu. En áhuginn
á skák var vaknaður.
Magnús hafði þá þegar eignaðist skák-
bók Bents Larsens, Finn planen, og fengið
skákdæmi frá föður sínum. Hann telfdi
fyrst ekki við aðra, virtist ekki vera keppnis-
maður, en var mjög hugfanginn af stöðu
manna á borðinu og flutti mennina til í
ýmsar nýjar stöður og mynstur. Var hann
enn í púslinu?
Eftir allar þessar vangaveltur um
mennina á borðinu fór Magnús að tefla
skák af kappi. Hann tefldi á mótum og var
með öðrum börnum á námskeiðum í
Iþróttaháskólanum. Meðal kennara var
Simen Agdestein, þá sterkasti skámaður
Noregs. Þarna fyrst kom keppniskapið
fram. Simen er nú næststerkasti skák-
maðurinn og þjálfari Magnúsar.
EINSTAKT MINNI
Henrik, faðir Magnúsar, segist hafa teflt
við strákinn fyrstu árin og hafði í upphafi í
fullu tré við hann. En þegar Magnús var
kominn á ellefta ár var þetta ekki skemmti-
legt lengur. I síðustu skák þeirra náði karl
jafntefli með herkjum og sagðist hafa látið
þar við sitja. Strákurinn var orðinn miklu
betri. Þó segist Henrik vera allþokkalegur
skákmaður.
Núna segja sérfræðingar að Magnús búi
yfir einstöku minni. Hann man þúsundir
skáka og sér fyrir sér ótölulegan fjölda af
möguleikum í hinum ýmsu stöðum.
Sjónminnið úr púslinu er enn lykillinn.
Hann kann allar skákir Fischers utan að
6. tbl. 2013 SKÝ 19