Ský - 01.12.2013, Blaðsíða 44
Jón Páll Halldórsson átti ríkan þátt í endurreisn gömlu húsanna í Neðstakaupstað ásamt félögum
sínum í húsfriðunarnefnd isafjarðar í röska tvö áratugi.
Hafnarstræti 2 sem vekja athygli og aðdáun
allra sem um Silfurtorgið fara en þessi hús
eru í svokölluðum Jugend-stíl og setja afar
sterkan svip á miðbæ þessa forna verslunar-
staðar. Asamt stórhýsinu sem áður hýsti
Kaupfélag Isfirðinga, Landsbankahúsinu og
Gamla apótekinu mynda þessi hús götu-
mynd við Hafnarstræti sem gefur Isafirði
yfirbragð lítillar heimsborgar.
Við þessa upptalningu mætti svo bæta
nokkrum húsum firá ofanverðri tuttugustu
öld sem byggð voru til opinberra nota, s.s.
Alþýðuhúsið við Austurveg, Húsmæðra-
skólinn og Sundhöllin við sömu götu.
Aratugum saman setti stórhýsi Kaupfélags
ísfirðinga sterkan svip á kaupstaðinn og
kaupfélagshornið réttnefnt hjarta bæjarins.
Kaupfélag ísfirðinga heyrir sögunni til en á
jarðhæð hússins eru enn reknar verslanir og
efri hæðunum mun verða breytt í hótelrými.
GAMLA FJÓSIÐ FÆR LÍF
Inni í Firði, á hinu gamla Seljalandi, hefijr
gamalt fjós verið gert upp og breytt í
íbúðarhús og vinnustofur listamanna. Þetta
gamla fjós er merkilegur minnisvarði um
samfélagið á ísafirði fýrr á tíð því það var í
eigu ísafjarðarbæjar en á þriðja áratug ald-
arinnar stofnuðu jafnaðarmenn sem þá réðu
lögum og lofum á ísafirði kúabú svo allir
bæjarbúar gætu fengið mjólk.
Fyrir vikið á mjólkurvinnsla á Isafirði afar
langa sögu en fýrir kaldhæðni örlaganna
hefur hagræðingarárátta nútímans leitt til
þess að Mjólkurstöðinni á ísafirði var lokað
fýrir skömmu. Mjólk sem bændur í Djúpi,
Súgandafirði og Onundarfirði framleiða er
nú flutt með bflum suður á land. Hún er
unnin á Selfossi og svo ferðast fernurnar og
dollurnar aftur landveg vestur á ísafjörð og
aðra staði vestra sem þurfa.
Nýjasta viðbótin í hóp gamafla og vel
uppgerðra húsa sem setja faflegan svip á
bæinn er Hrannargata 2 þar sem veitinga-
staðinn Húsið er að finna. Viðgerð þess var
lokið sumarið 2012 og er öllum bæjarbúum
gleðiefni því þessi gamli sýslumannsbústaður
var farinn að grotna svolítið niður en umrætt
hús er afar áberandi í bæjarmyndinni og
blasir við þeim sem koma akandi eftir
Skutulsfjarðarbraut.
í HELGUM STEIN VIÐ ENGJAVEG
Jón Páfl Hafldórsson býr við Engjaveg á
Isafirði og hefur gert í rúmlega hálfa öld.
Engjavegur flggur samsíða Seljalandsvegi
uppi í hlíðinni fýrir ofan eyrina og þaðan er
gott útsýni yfir hinn forna verslunarstað á
Eyri við Skutulsfjörð.
Jón Páfl starfaði í áratugi sem forstjóri
Norðurtangans sem var annar af tveimur
stærstu vinnustöðum á ísafirði seinni hluta
síðustu aldar. Nokkuð er liðið á annan tug
ára síðan Jón Páfl settist í helgan stein og
hætti daglaunavinnu. Ekld hefur hann samt
setið auðum höndum því ritstörf og sagna-
grúsk hafa afla tíð verið hans annað líf og
eftir að starfsferfl lauk hafa fjórar bækur um
atvinnusögu Isafjarðar bæst í safn titla eftir
hann. Ein fjaUar um togaraútgerð Isfirðinga,
önnur um fiskvinnslu, sú þriðja um verslun-
arsögu bæjarins og hin fjórða og nýjasta um
flugsögu ísafjarðar.
Jón Páll er fæddur 1929. Hann er samt
enn beinn í baki og kvikur í hreyfingum.
Ég barðist gegnum skafla og hríð neðan af
Eyri upp á Engjaveg og settist hjá Jóni PáU
einn dag í nóvember þegar birtan átti erfitt
uppdráttar og tæplega sást þvert yfir Engja-
veginn fýrir skafrenningi og bað hann að rifja
upp aðdraganda þess að uppbygging gamaUa
húsa á ísafirði hófst.
„Þegar okkur loksins tókst að fá bæjar-
stjórnina á ísafirði til þess að friðlýsa húsin
og setja á fót sérstaka húsafriðunarnefnd
hafði þessi hugmynd átt sér nokkurn aðdrag-
anda,“ sagði Jón Páll hægt og virðulega.
„Innan vébanda Rotaryklúbbsins hér á
Ísafirði hafa oft verið flutt erindi sem hafa
orðið kveikjan að ýmsum framfaramálum í
bænum.Jóhann Gunnar Olafsson starfaði
hér sem bæjarfógeti í 25 ár en varðveisla
sögulegra minja var mikið áhugamál hans.
Þegar hann kvaddi okkur félaga sína í
Rotaryklúbbnum þá lét hann svo um mælt
að eina ósk hans tfl samborgara sinna á
ísafirði væri að bæjarrústum Helga Hrólfs-
sonar á Eyri og verslunarhúsunum í Neðsta-
kaupstað yrði hlíft við útrýmingu. Fram að
þeim tíma voru þessi hús að drabbast niður
hægt og rólega því þau fengu takmarkað eða
ekkert viðhald. Við leituðum í hina og þessa
sjóði eftir fé til endurbótanna en satt að segja
var nokkuð á brattann að sækja í þessum
efnum og fýrstu árin gerðist ekki mjög
mikið. En við héldum alltaf dampi.“
Þess er skylt að geta að bæjarrústir Helga
Hrólfssonar er bæjarhóflinn á túninu við
gamla sjúkrahúsið nálægt þeim stað þar sem
styttan af sjómönnunum með netið stendur.
HUGMYND SEM SMITAR ÚT FRÁ SÉR
- En áttu þessar hugmyndir upp á paflborðið
hjá öllum á þessum tíma? „Nei, þótt ótrúlegt
megi virðast urðu ýmsir tfl þess að segja við
okkur að við værum að koma í veg fýrir að
hreinsað yrði tíl á lóðum á hafnarsvæðinu sem
mætti nýta undir arðbæra atvinnustarfsemi."
Hvort sem það er tilviljun eða ekki þá voru
aflir meðflmir húsfriðunarnefndarinnar í
Rotaryklúbbnum og Jón PáU og Gunnar í
stjórn hans þegar þetta var. Kannski var
einhver fótur fyrir því sem sagt var á götun-
um á Isafirði á þessum árum að bæjarstjórnin
44 SKÝ 6. tbl. 2013