Ský - 01.12.2013, Side 44

Ský - 01.12.2013, Side 44
Jón Páll Halldórsson átti ríkan þátt í endurreisn gömlu húsanna í Neðstakaupstað ásamt félögum sínum í húsfriðunarnefnd isafjarðar í röska tvö áratugi. Hafnarstræti 2 sem vekja athygli og aðdáun allra sem um Silfurtorgið fara en þessi hús eru í svokölluðum Jugend-stíl og setja afar sterkan svip á miðbæ þessa forna verslunar- staðar. Asamt stórhýsinu sem áður hýsti Kaupfélag Isfirðinga, Landsbankahúsinu og Gamla apótekinu mynda þessi hús götu- mynd við Hafnarstræti sem gefur Isafirði yfirbragð lítillar heimsborgar. Við þessa upptalningu mætti svo bæta nokkrum húsum firá ofanverðri tuttugustu öld sem byggð voru til opinberra nota, s.s. Alþýðuhúsið við Austurveg, Húsmæðra- skólinn og Sundhöllin við sömu götu. Aratugum saman setti stórhýsi Kaupfélags ísfirðinga sterkan svip á kaupstaðinn og kaupfélagshornið réttnefnt hjarta bæjarins. Kaupfélag ísfirðinga heyrir sögunni til en á jarðhæð hússins eru enn reknar verslanir og efri hæðunum mun verða breytt í hótelrými. GAMLA FJÓSIÐ FÆR LÍF Inni í Firði, á hinu gamla Seljalandi, hefijr gamalt fjós verið gert upp og breytt í íbúðarhús og vinnustofur listamanna. Þetta gamla fjós er merkilegur minnisvarði um samfélagið á ísafirði fýrr á tíð því það var í eigu ísafjarðarbæjar en á þriðja áratug ald- arinnar stofnuðu jafnaðarmenn sem þá réðu lögum og lofum á ísafirði kúabú svo allir bæjarbúar gætu fengið mjólk. Fyrir vikið á mjólkurvinnsla á Isafirði afar langa sögu en fýrir kaldhæðni örlaganna hefur hagræðingarárátta nútímans leitt til þess að Mjólkurstöðinni á ísafirði var lokað fýrir skömmu. Mjólk sem bændur í Djúpi, Súgandafirði og Onundarfirði framleiða er nú flutt með bflum suður á land. Hún er unnin á Selfossi og svo ferðast fernurnar og dollurnar aftur landveg vestur á ísafjörð og aðra staði vestra sem þurfa. Nýjasta viðbótin í hóp gamafla og vel uppgerðra húsa sem setja faflegan svip á bæinn er Hrannargata 2 þar sem veitinga- staðinn Húsið er að finna. Viðgerð þess var lokið sumarið 2012 og er öllum bæjarbúum gleðiefni því þessi gamli sýslumannsbústaður var farinn að grotna svolítið niður en umrætt hús er afar áberandi í bæjarmyndinni og blasir við þeim sem koma akandi eftir Skutulsfjarðarbraut. í HELGUM STEIN VIÐ ENGJAVEG Jón Páfl Hafldórsson býr við Engjaveg á Isafirði og hefur gert í rúmlega hálfa öld. Engjavegur flggur samsíða Seljalandsvegi uppi í hlíðinni fýrir ofan eyrina og þaðan er gott útsýni yfir hinn forna verslunarstað á Eyri við Skutulsfjörð. Jón Páfl starfaði í áratugi sem forstjóri Norðurtangans sem var annar af tveimur stærstu vinnustöðum á ísafirði seinni hluta síðustu aldar. Nokkuð er liðið á annan tug ára síðan Jón Páfl settist í helgan stein og hætti daglaunavinnu. Ekld hefur hann samt setið auðum höndum því ritstörf og sagna- grúsk hafa afla tíð verið hans annað líf og eftir að starfsferfl lauk hafa fjórar bækur um atvinnusögu Isafjarðar bæst í safn titla eftir hann. Ein fjaUar um togaraútgerð Isfirðinga, önnur um fiskvinnslu, sú þriðja um verslun- arsögu bæjarins og hin fjórða og nýjasta um flugsögu ísafjarðar. Jón Páll er fæddur 1929. Hann er samt enn beinn í baki og kvikur í hreyfingum. Ég barðist gegnum skafla og hríð neðan af Eyri upp á Engjaveg og settist hjá Jóni PáU einn dag í nóvember þegar birtan átti erfitt uppdráttar og tæplega sást þvert yfir Engja- veginn fýrir skafrenningi og bað hann að rifja upp aðdraganda þess að uppbygging gamaUa húsa á ísafirði hófst. „Þegar okkur loksins tókst að fá bæjar- stjórnina á ísafirði til þess að friðlýsa húsin og setja á fót sérstaka húsafriðunarnefnd hafði þessi hugmynd átt sér nokkurn aðdrag- anda,“ sagði Jón Páll hægt og virðulega. „Innan vébanda Rotaryklúbbsins hér á Ísafirði hafa oft verið flutt erindi sem hafa orðið kveikjan að ýmsum framfaramálum í bænum.Jóhann Gunnar Olafsson starfaði hér sem bæjarfógeti í 25 ár en varðveisla sögulegra minja var mikið áhugamál hans. Þegar hann kvaddi okkur félaga sína í Rotaryklúbbnum þá lét hann svo um mælt að eina ósk hans tfl samborgara sinna á ísafirði væri að bæjarrústum Helga Hrólfs- sonar á Eyri og verslunarhúsunum í Neðsta- kaupstað yrði hlíft við útrýmingu. Fram að þeim tíma voru þessi hús að drabbast niður hægt og rólega því þau fengu takmarkað eða ekkert viðhald. Við leituðum í hina og þessa sjóði eftir fé til endurbótanna en satt að segja var nokkuð á brattann að sækja í þessum efnum og fýrstu árin gerðist ekki mjög mikið. En við héldum alltaf dampi.“ Þess er skylt að geta að bæjarrústir Helga Hrólfssonar er bæjarhóflinn á túninu við gamla sjúkrahúsið nálægt þeim stað þar sem styttan af sjómönnunum með netið stendur. HUGMYND SEM SMITAR ÚT FRÁ SÉR - En áttu þessar hugmyndir upp á paflborðið hjá öllum á þessum tíma? „Nei, þótt ótrúlegt megi virðast urðu ýmsir tfl þess að segja við okkur að við værum að koma í veg fýrir að hreinsað yrði tíl á lóðum á hafnarsvæðinu sem mætti nýta undir arðbæra atvinnustarfsemi." Hvort sem það er tilviljun eða ekki þá voru aflir meðflmir húsfriðunarnefndarinnar í Rotaryklúbbnum og Jón PáU og Gunnar í stjórn hans þegar þetta var. Kannski var einhver fótur fyrir því sem sagt var á götun- um á Isafirði á þessum árum að bæjarstjórnin 44 SKÝ 6. tbl. 2013

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.