Ský - 01.12.2013, Qupperneq 11

Ský - 01.12.2013, Qupperneq 11
Besti flokkurinn hefur veriö lagöur niður og Björt framtið kemur í hans stað. Óttarr gekk til liðs við Bjarta framtíð fyrir síðustu alþingiskosningar og situr nú á þingi fyrir flokkinn. formið á hljómsveitinni Dr Spock sem fram að því hafði einkum haldið brjálaða tónleika í pínulitlum kjöllurum fyrir mjög sértækan hóp. Þannig að það var mjög skemmtilegt.“ I seinni tíð er Ottarr einnig þekktur sem keppandi fyrir hönd Reykjavíkur í Utsvari. „Utsvarið geri ég að hluta til af skyldu- rækni sem hluta af starfmu en svo er ég líka heilmikið nörd og hef gaman af því að keppa í visku og sérvisku. Það er mesta furða hvaða vitneskja leynist stundum þarna inni og eins fróðlegt á hverju maður gatar. Þegar ég fer í Útsvar er ég alltaf hræddur um að muna ekki eitthvað sem ég á að vita. Muna ekki nafnið á einhverjum sem ég þekki til dæmis eða ruglast á plöt- um sem ég hef sjálfur sungið inn á og svo framvegis. Ef það gerist er það mjög pirr- andi en mjög þroskandi og ég hef kynnst nýjum hliðum á sjálfum mér bæði í Söngvakeppninni og Utsvari." ENDALOK BESTA FLOKKSINS Þeir félagar Jón Gnarr og Óttarr Proppé hafa verið samferða í ýmsum ævintýrum gegnum tíðina og ekki síst síðan þeir tóku saman sæti í borgarstjórn árið 2010. Nú skiljast leiðir þar sem Jón Gnarr ákvað að hætta í pólitíkinni eftir að þessu kjörtíma- bili í borginni lýkur en Óttarr færði sig um set í pólitíkinni og situr nú á Alþingi. Þrátt fyrir það skilur Óttarr ákvörðun Jóns Gnarr mjög vel. „Ég held að við höfum öll í Besta flokknum farið í gegnum öll stig áfalla- fræðinnar dagana fyrir og eftir kosning- arnar 2010 þegar það var orðið ljóst hvern- ig færi og að við þyrftum að standa undir þessu. Ég held að fæstir hafi gert sér grein fyrir því, nema kannski Jón, að þeir þyrftu að setja allt sitt til hliðar og hella sér út í borgarmálin af lífi og sál.Til þess að vera í borgarstjórn þarftu að setja allt annað til hliðar. Þú hættir í þínu fagi, hættir að koma heim á kvöldin og þetta var erfitt fyrir okkur öll en sérstaklega Jón. Hann er svo frjór og alltaf með fimmtíu brandara, tvær bækur, leikrit og sitthvað fleira í hausnum og það hefur verið honum erfitt að fá ekki útrás fyrir þetta allt saman. Svo er starf borgarstjórans 28 tímar á sólar- hring þannig að ég held að hans ákvörðun sé ekki síður gagnvart fjölskyldunni. Ég er barnlaus og konan mín er mjög upptekin og vinnur líka stundum á kvöldin svo ég átti auðveldara með að taka meiri tíma á þessum vettvangi. Svo er ég líka forvitinn að eðlisfari og finnst ég læra mjög mikið á þessu svo vonandi er maður að verða að- eins skárri í að gera eitthvert gagn. En ég velti ákvörðuninni vel fyrir mér. Það er nauðsynlegt fyrir alla stjórnmálamenn að spyrja sig reglulega: af hverju er ég hérna og er ég að gera gagn? Og ég tek þá sam- ræðu við sjálfan mig og mína reglulega. Maður má alltaf segja nei.“ FRAMTÍÐIN BJARTA Besti flokkurinn hefur verið lagður niður og Björt framtíð kemur í hans stað. Óttarr gekk til liðs við Bjarta framtíð fyrir síðustu alþingiskosningar og situr nú á þingi fyrir flokkinn. 6. tbl. 2013 SKÝ 11

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.