Ský - 01.12.2013, Page 32

Ský - 01.12.2013, Page 32
hann í sjálfu sér kom mér inn í þetta. Þetta fannst mér fljótt skemmtileg íþrótt enda alltaf haft gaman af því að vera úti.“ Hann segir að hraðinn hafi líka heillað, spennan og áhættan. „Eg er spennufíkiU og mér finnst gaman að lifa á ystu brún. Skíðaíþróttin hentaði mér einnig vel þar sem hún er einstaklingsíþrótt en ég er meiri einstaklingsíþróttamaður; mér finnst leiðinlegt ef aðrir klúðra hlutunum svo mér finnst betra ef ég geri það sjálfur." ÞRENNIR ÓLYMPÍULEIKAR, HEIMSMEISTARATITILL OG 31 ÍSLANDSMEISTARATITILL Björgvin hefur tekið þátt á þrennum Olympíuleikum á ferlinum, tekið þátt í 48 heimsbikarmótum úti um allan heim og keppti á sex heimsmeistaramótum. Hann var fimm ára þegar hann keppti á skíðum í fyrsta skipti. Á yngri árum tók hann þátt á Andrésar andarleikunum þar sem hann sigraði tvisvar sinnum og næstu árin vann hann hvert unglingameistaramótið af öðru en hann var Islandsmeistari unglinga þrjú ár í röð - 13-15 ára í svigi og stórsvigi. Hann vann auk þess hin ýmsu bikarmót. „Ég man að ég vann eitt svigmót á 16 sek-úndum; það þótti vera mjög gott.“ Hann keppti fyrst erlendis í Noregi þegar hann var í 10. bekk. „Ég keppti á Coca Cola Cup í Noregi og stóð mig ágætlega - endaði í 9. sæti.“ Þar var fylgst með Islendingnum og var honum í kjölfarið boðið að setjast á skólabekk við skíðamenntaskóla í Noregi. „Ég flutti út 16 ára og keppti fyrsta árið mikið á alþjóðlegum fismótum bæði í Noregi og Svíþjóð og gekk mér ágætlega. Ég lækkaði þessi alþjóðlegu fisstig mín hægt og rólega og gekk alltaf betur og betur. Annað árið í skíðamenntaskólanum varð ég svo heimsmeistari unghnga sem kom mér virkilega á óvart. Það hafði svo sem gengið vel en ekki það vel að ég ætti von á að vinna mótið; það kom í rauninni öllum á óvart. Þetta ár, 1998, var árið sem lyfti mér upp og ég fékk trú á því að ég gæti orðið góður á skíðum á heimsvísu." Hann var orðinn bestur í heiminum á sínum aldri í stórsvigi og um tvítugt færð- ist hann nær því að vera á meðal fremstu skíðamanna heims. Á næstu árum vann Björgvin 31 Islandsmeistaratitil ásamt fjölda alþjóðlegra ÉIS sigra bæði hérlendis og erlendis. „Mér finnst mesta afrekið vera þegar ég endaði í 24. og 25. sæti á heimsbikarmótum sem haldin voru í Zagreb í Króatíu árin 2009 og 2010. Það er annar besti árangur íslensks skíðamanns frá upphafi. Ég var búinn að bíða svo lengi eftir því að það myndi gerast og þar keppa allir bestu skíðamenn í heimi. Markmið mitt var alltaf að vera góður í heimsbikar og að komast í aðra umferð í heimsbikar var gríðarlegt markmið en aðeins 30 fyrstu eftir fyrri ferð fá að taka þátt í seinni ferðinni.“ Björgvin reyndi alltaf að halda sömu rútínu hvað æfingar varðar, hvort sem hann var að fara að taka þátt í Islandsmeistaramótum, heimsbikars- mótum eða Olympíu-leikunum „Ég lagði áherslu á að halda alltaf sama dampi til að verða ekki stressaður fyrir stórmót." Hann segir að undirbúningur hafi farið mikið fram á sumrin. „Sumarið er lykil- atriði fyrir skíðamanninn. Ég æfði mig tvisvar á dag; gerði þrekæfingar, styrktar- æfingar og hljóp.“ ERFITT AÐ HÆTTA Hann var 31 árs þegar hann hætti í atvinnumennsku árið 2011. „Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið. Mér fannst ég ekki vera búinn að gera það sem ég hafði stefnt að og mér fannst ég vera þvingaður til að hætta. Þessa ákvörðun tók ég hins vegar að vandlega íhuguðu máli þegar ég taldi sýnt að Skíðasamband Islands gæti ekki veitt mér þann stuðning sem mér væri nauð- synlegur til að komast í allra fremstu röð 32 SKÝ 6. tbl. 2013

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.