Ský - 01.12.2013, Qupperneq 38

Ský - 01.12.2013, Qupperneq 38
AUGNHEILSA SJÓNLAG í GLÆSIBÆ: OPNAÐU AUGUN FYRIR FRELSINU Sjónlag er stór augnlæknastöð sem býður heildarþjónustu varðandi allt sem hefur með augu að gera. Markmiðið er fyrst og fremst að bæta lífsgæði fólks með sérhæfðri þekkingu og nýjustu tækni. TEXTI: VIGDÍS STEFÁNSDÓTTIR Nútímafólk gerir stöðugt meiri kröfiir til heilsufars en áður og leggur mikið upp úr lífsgæðum og þar er sjónin mjög mikilvæg," segir Kristinn Olafs- son, framkvæmdastjóri Sjónlags. „Almennt séð er fólk miklu virkara í dag en það var fyrir nokkrum ámm síðan. Það er t.d. orðið mun algengara að fólk gangi á fjöll, stundi hlaup, hjólreiðar og skíðamennsku og þá vilja gleraugun flækjast fyrir. Fyrir marga sem vinna útivinnu, eins og iðnaðarmenn, sjó- menn og bændur, getur verið hamlandi að vera með gleraugu og er þá til nokkurs unnið að geta losnað við þau. Hvort sem um er að ræða sjónskekkju, fjarsýni, nærsýni eða ann- að, hjálpum við viðkomandi að finna bestu mögulegu lausn en þær geta verið margar.“ FRAMTÍÐIN í SJÓNLAGSAÐGERÐUM Hjá Sjónlag vinna fimm augnlæknar sem hafa hver um sig mismunandi sérþekkingu. Einnig starfa þar tveir sjóntækjafræðingar og fjórir hjúkrunarfræðingar ásamt öðm fag- fólki. Stöðin býður upp á tvær fullkomnar skurðstofur fyrir aðgerðir og nýjustu og fullkomnustu lasertækin. Nýjasta lausnin sem Sjónlag býður upp er hníflaus sjónlags- aðgerð og kallast Femto-LASIK. Þessi aðferð hefur tekið við sem gullstandardinn í sjónlagsaðgerðum um allan heim, en hún byggist á því að gerður er flipi á hornhimn- una með Femto laser í stað þess að nota hníf og hornhimnan síðan mótuð með nýjum augnlaser. Þessi aðferð gerir að verkum að hornhimnan er sterkari eftir aðgerðina, nætursjón er betri, þurrkur er minni og fylgikvillar færri auk þess sem augað er fljótara að jafna sig eftir aðgerðina. FUÓTLEG AÐGERÐ „Við getum tekið sem dæmi 35 ára ein- stakling sem hefur alla sína ævi gengið með gleraugu, er með fjarsýni og sjónskekkju og er orðinn þreyttur á gleraugunum,“ segir Kristinn. „Viðkomandi fer í ítarlega forskoð- un þar sem metið er hvort hann eða hún geti farið í sjónlagsaðgerð. Laseraðgerðin tekur örskamma stund, aðeins um 10 mínútur að meðhöndla auga. Að aðgerð lokinni fer viðkomandi heim og leggur sig og getur horft á sjónvarpið um kvöldið án gleraugna. Hjá Sjónlagi er einnig boðið upp á aðra tegund sjónlagsaðgerða er kallast augasteinaskipti en þá er augasteini skipt út. Þetta er algeng aðgerð hjá fólki eldra en 70 ára sem hefiir fengið ský á augastein. Það færist hins vegar í vöxt að yngra fólk fari í slíkar aðgerðir því laseraðgerðir henta yfirleitt ekki fólki eldra en 55 ára. Augasteinaaðgerðir taka sömuleiðis stutta stund en geta gjörbreytt lífi fólks. Hægt er að fá augastein með ákveðnum styrk og laga þannig til dæmis nærsýni og fjarsýni. Einnig er hægt að fá fjölfókusaugasteina sem lagfæra bæði nærsýni og fjarsýni í sama aug- anu. Þessir augasteinar duga út ævina og þessu fylgir h'ka sá góði kostur að þeir sem em með þá fá ekki ský á augasteina eins og algengt er hjá eldra fólki. Væntanlega munu um og yfir 90% þeirra sem nú em 40 ára og yngri fara í augasteins-aðgerð á ævinni.” Að lokinni laseraðgerð fer viðkomandi heim og leggur sig og getur horft á sjónvarpið um kvöldið án gleraugna. Óskar Jónsson augnlæknir í augasteinsaögerð. Ólafur Már Björnsson augnlæknir í laseraðgerð. ÓDÝRARI AÐGERÐIR HÉR Sjónlag leggur áherslu á að halda kostnaði við aðgerðir í lágmarki svo sem flestir geti notið þeirra. „Hingað koma til dæmis margir frá Færeyjum því aðgerðirnar hér em mun ódýrari en í okkar nágranna- löndum,“ segir Kristinn. „Við emm með stuttan biðtíma og dugar að koma í 3-4 daga hingað til lands ef fara á í sjónlags- aðgerð. Það getur munað ansi miklu á verðinu og við bjóðum mjög góða þjónustu bæði hvað varðar gæði og öryggi.“ ÖRYGGIÐ í FYRSTA SÆTI Alltaf koma upp spurningar um öryggi og segir Kristinn það eðlilegt. Sjónin er afar dýrmæt og fæstir vilja taka áhættu með hana. „Það hafa ansi margir farið í sjónlagsaðgerðir hjá okkur og öðmm og reynslan segir okkur að áhættan sé afar lítil á því að eitthvað fari úrskeiðis. Mikilvægast er að gera ýtarlega forskoðun og finna þær lausnir sem henta hverjum og einum best. Okkar reynsla er sú að um 80% einstaklinga geta farið í laserað- gerðir. Við gætum þess að öryggis sé gætt í hvívetna og teljum okkur vera þar í farar- broddi,“ segir Kristinn að lokum. SKÝ 38 SKÝ 6. tbl.2013

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.