Ský - 01.12.2013, Page 53

Ský - 01.12.2013, Page 53
ÁSGERÐUR ÓLÖF ÁSGEIRSDÓTTIR NEMANDI í MENNTASKÓLANUM Á AKUREYRI r ■i 1] Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir nemandi í fjórða bekk Menntaskólans á Akureyri fór með sigur af hólmi í ræðukeppni sem haldin er árlega á vegum ESU, (English Speaking Union) og Félags enskukennara á íslandi. Ræðumenn flytja ræður sínar á ensku. TEXTI OG MYND MARGRET ÞORA ÞORSDOTTIR Asgerður komst upp úr æsispennandi undanriðli og í sjálf úrslitin en þar öttu kappi fulltrúar frá Fjölbrauta- skólanum í Armúla, Verslunarskóla Islands, Menntaskólanum við Hamrahlíð og Menntaskólanum á Akureyri. Ásgerður sigraði með glæsibrag. Það þýðir að hún mun sem fuUtrúi íslands taka þátt í stórri ræðu- keppni í London næsta vor og etja þar kappi við fuUtrúa ríflega 50 annarra þjóðlanda. „Eg hef verið í þessu nokkur undanfarin ár og hef mjög gaman af,“ segir Ásgerður. Hún hefiir aðstoðað ræðulið MA sem m.a. tekur þátt í Morfís keppnum og segir að liðinu hafi gengið ágædega undanfarin ár. Hún hefur um árin haft mikinn áhuga fýrir leiklist og var m.a. í stjórn Leikfélags Menntaskólans á Akureyri, LMA. Ásgerður hafði hug á að vera með í keppn- inni í fyrrahaust, en þá hittist svo á að hún var haldin á sama tíma og Morfis. Sem varð ofan á í það skiptið. „En núna ákvað ég að taka þessa keppni framyfir og sé alls ekki eftir því,“ segir hún. Umræðuefnið í keppninni í ár var: Ideas are our Greatest Weapons. MALALA YOUSAFIZAI BARÁTTUSTÚLKA FRÁ PAKISTAN Ásgerður bar í ræðu sinni saman aðstæður sínar við þær aðstæður sem Malala Yousa- fizai, baráttukonu frá Pakistan sem barist hefur fyrir menntun stúlkna þar í landi og vakið heimsathygli. „Það er óh'ku saman að jafna, við búum við afskaplega ólíkar aðstæð- ur, Malala hefur engan aðgang að menntun og þarf að beqast til að fá að læra, en hér á íslandi geta þeir sem kæra sig um gengið inn í gott menntakerfi og aflað sér þeirrar menntunar sem hugurinn stefnir til,“ segir Ásgerður. „Ég átti ekki von á að vinna þegar ég ákvað að taka þátt í keppninni, en mér leið mjög vel, umræðuefnið var áhugavert og skemmtilegt og féll mjög vel að mínum áhugasviðum. “ Nú er stefnan sett á London, þar sem fram fer ræðukeppni 14. maí 2014 en í henni taka þátt fúlltrúar vel yfir 50 þjóðlanda. Umræðu- efnið þar verður: Imagination is more im- portant than knowlegde. Ásgerður segir að Enskudeild MA muni aðstoða sig við undir- búning Kkt og hún gerði fyrir keppnina hér heima. ENN AFSLÖPPUÐ GAGNVART KEPPNINNI í LONDON „Enn er ég afslöppuð gagnvart keppninni úti og er ekki byijuð að undirbúa mig formlega, en auðvitað er það svo að undirmeðvitundin vinnur með manni, oft grípur maður eitthvað upp sem lesið er eða maður heyrir eða sér og það gerjast innra með fólki og nýtist ef til vill síðar. Eg er á einhvem veginn þannig stigi núna. Ég veit hins vegar að þetta verður mjög erfitt, þar verða gríðarlega margir þátttakendur og hluti þeirra hefur ensku að móðurmáli og standa því betur að vígi en við hin sem eigum önnur móðurmál. Ég æda samt ekki að láta neitt pirra mig, ég fer út með það markmið að hafa gaman af en kannski fyrst og fremst tíl að læra af þessu,“ segir Ásgerður sem fljódega eftir heimkomuna úr ræðukeppninni í Lond- on tekur stúdentspróf og félagsfræðideild og brautskráist frá Menntaskólanum á Akureyri. „Ég stefni að því að ferðast til údanda, fara í heimsreisu,“ svarar hún spurð um áform að loknu stúdentsprófi. ,jVhg langar að skoða mig um í heiminum fyrst á meðan tækifæri er til og síðar mun ég eflaust setjast aftur á skólabekk." SKÝ 6. tbl. 2013 SKÝ 53

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.