Árbók Hannesar á horninu - 31.12.1941, Side 57
55
miklum og allir miklu stærri en áöur var,
Sumir græða milljónir en aðrir tugi króna.
Allir kaupa allt og allir selja allt. Stríðs-
gróðamenn kaupa upp jarðir í heilum hrepp-
um og húseignir eru seldar fyrir fimmfalt
verð. Þeir einu, sem virðast veita breytingun-
um fuila athygli eru uppgjafa gamalmenni,
sem ekki geta tekið þátt í þessum tryllta
dansi stríðsins, því að það er styrjöldin, sem
veldur þessu, ógnirnar binum megin við höf-
in.
Við höfum gesti í landinu. Brezkt setv-
lið, sem dvahð hefur hér í meira en hálft
annað ár, bandarískt setulið, sem dvalið hef-
ur hér í hálft ár og norskar liðssveitir, sem
búnar eru að vera hér í ár. Sem hernumin
þjóð getum við ekki vænzt þess að vera
jafn frjáls í landi okkar og við áður vorum,
og þó virðast allar aðrar hernumdar þjóðir
hafa við allt önnur og verri kjör að búa en
við. Okkur skort'r ekki neitt. Við höfum
nóg til fæðis og klæðis. Við höfum frelsi
um okkar innri mál og afkoma okkar, bæði
sem einstaklinga og þjóðar, batnar dag frá