Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 7
KARL STRAND,
læknir:
ÚR ÆVINTÝRASÖGU
MANNSHEILANS
Erindi flutt í Ríkisútvarpið haustið 1952.
2. erindi.
1 fyrsta erindi þessa flokks var leitazt við að gera
grein fyrir þróun mannsheilans í stórum dráttum, hversu
hann skapaðist á milljónum ára úr ófullkomnu tauganeti
í líkingu við marglittutaugakerfið í það form, sem hann
ber í dag. Næst skulum við athuga, hvernig nútíma-
heilastarfsemi er varið.
Sjálfur heilinn er samsettur úr um fimmtán þúsund
milljónum fruma af ýmsum stærðum og gerðum. En
langmestur fjöldi þessara fruma liggur í yzta lagi heil-
ans, sem dekkra er á lit en aðalheilinn og nefnist heila-
börkur. Allar þessar frumur standa í sambandi við tauga-
kerfi og skynfæri líkamans, annað hvort beint eða með
milligöngu annarra fruma. Þær taugar, sem liggja til og
frá heilanum út um allan líkamann, eru yfirleitt gerðar
úr þráðlaga frumum, sem sumar hverjar eru jafnvel á
annan meter á lengd, þótt gildleiki þeirra sé minni en
einn þúsundasti úr þumlungi. Þær liggja samhliða þús-
undum og tugþúsundum saman, mynda taugabrautir mæn-
unnar, því fleiri sem ofar dregur, flytjandi boð frá húð,
vöðvum og öðrum líffærum, sumar til heilans eða stöðva
í mænunni, aðrar frá heilanum til viðkomandi líffæra.
Ef til vill verður okkur þetta ljósara, ef við hugsum
okkur heilann og taugakerfið eins og risavaxna stjórnar-
skrifstofu, þar sem 15 þúsund milljónir símastúlkna, skrif-
Heilbrigt lif
45