Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 10
hver einstakur taugaþráður, sem tekur á móti skynjun, er
ekki tengdur eingöngu einni vöðvatrefju með millistöð í
heilanum. Á leið sinni til heilans getur boðið skotizt í út-
úrkróka, tekið hliðargötur, ef sérstakar ástæður eru fyrir
hendi, eða fengið afgreiðslu á minni háttar stöð niðri í
mænu án þess að til kasta heilabarkarins komi. En kom-
ist boðið alla leið upp til ákveðinnar heilastöðvar í æðsta
ráði stjórnarinnar, heilaberkinum, er hvergi nærri víst,
hver afgreiðslan verður. Hér koma tvær nýjar ástæður til
sögunnar. Önnur er sú, að einn stakur vaki er ekki ætíð
nógur til þess að vekja svörun, venjulega sendist hópur
af boðum eftir mörgum frumuþráðum, því fleiri sem meira
á ríður. Þessu svipar til þess að Jón á Klapparstígnum
hefði tíu bjöllur við dyr sínar, en ómakaði sig helzt ekki
nema 2—3 væri hringt í einu, og ef öllum tíu væri hringt,
þá færi ekki einungis Jón á stúfana, heldur einnig kona
hans og krakkar til þess að afgreiða gestinn eftir beztu
getu.
Nú væri einfaldast að hugsa sér, að hið fráfarandi heila-
boð væri sniðið eftir skeytinu, sem inn kom, þannig að
ákveðið boð, sem á annað borð nægði til þess að vekja
álíka hóp af heilafrumum til svörunar, orsakaði álíka
svar. En þessu fer fjarri. Það, sem svöruninni ræður,
er í fyrsta lagi ástand heilastöðvarinnar sjálfrar, hverrar
einstakrar frumu þar og samband þeirra innbyrðis. Þessi
símastöð gefur ekki samband eftir beiðni, heldur eftir
skapsmunum og hæfileikum símastúlkunnar í hvei-t skipti,
svo notuð sé sama líking og fyrr.
Til þess að skilja þetta til fullnustu verðum við að
víkka til muna það leiksvið, sem við höfum sett upp fyrir
hugskotssjónum okkar. Hingað til höfum við einkum tal-
að um einn vaka, eitt boð, eina nálarstungu o. s. frv. í
daglegu lífi, þegar meðvitundin er fullkomlega vakandi,
er sjaldan um einn vaka að ræða, heldur marga samtímis,
48
Heilbrigt líf