Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 11

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 11
þar sem sumir eru vitaðir, aðrir að mestu eða öllu óvit- aðir. Sem dæmi má nefna vakana frá snertingu fata okkar allan daginn, en þeim er lítill gaumur gef- inn meðan skórinn kreppir ekki eða flibbinn er nógu víður. Þetta eru hringingar, sem Jón á Klapparstígn- um anzar ekki. Um þá vaka, sem knýja heilastöðvarnar til athafna, gildir það yfirleitt, að þeir koma inn í hóp- um, stundum skipulagðir í þekktar heildir, stundum óreglu- lega. Hlutverk heilastöðvanna er því ekki einungis að greina þessar heildir og afgreiða þær frá réttum stöð- um, heldur og einkum að samræma þá sérstöku þýðingu, sem hver samstæða af vökum hefur, við þá reynslu og þær minningar, sem fyrir hendi eru í heilanum, og senda út svaranir sínar fyrst og fremst með tilliti til þess á- stands, sem skapar afstöðu stöðvarinnar til þessarar sam- stæðu. Hér koma því tvö ný atriði til sögunnar, sem mikil- væg eru í starfsemi heilans. Annað eru samstæður eða kerfi og hitt er hæfileikinn að muna. Lítum fyrst á það, sem við nefnum samstæður. Hvert mannsbarn, sem þekkir spilin, veit, hversu auðvelt er að nota sömu spilin aftur og aftur til þess að mynda sam- stæður af ólíkustu gerðum. Við getum raðað þeim í kerfi eftir lit, eftir jöfnum, eftir summu eða margfeldi depl- anna og svo mætti lengi telja. Með 52 spilum getum við búið til mörg hundruð kerfi með því að raða þeim í mis- munandi afstöðu hvers til annars. Það atriði þarf ekki frekari skýringar við. Setjum nú svo að við séum að spila vist og fáum einn lit eingöngu í forhönd. Við segjum hróðugir grand í fullri vissu þess að ná hverjum slag. En hafi skyldusóló í for- hönd verið fyrirfram ákveðin, verður svörum okkar mjög á annan veg. í bæði skiptin er sá vaki, er sjóntaugin flyt- ur til heilans, algerlega hinn sami. En það fyrirfram ákveðna ástand í þeirri heilastöð okkar, sem móti boðun- Heilbrigt líf — 4 49

x

Heilbrigt líf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.