Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 16

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 16
Þetta er ein tegund þeirrar fötlunar, sem við köllum löm- un, en sú fötlun getur vitanlega einnig stafað af skemmd- um annars staðar í heilabrautum eða taugum. En ef um minni háttar svæði er að ræða, koma hreyfingar smátt og smátt á ný, en í grófara formi. Frumstæðar hreyfing- ar koma fyrst, lærðar og vandasamar hreyfingar síðar. Þær heilafrumur, sem brott voru numdar, koma ekki aft- ur, að því leyti stendur heilinn verr að vígi en önnur líf- færi, en smátt og smátt leitast heilinn við að yfirfæra starf þeirra á aðrar frumur. Hversu fullkomin sú endur- bót er, fer eftir upphaflegu skemmdinni og ýmsum öðrum aðstæðum. Nú minnumst við þöglu svæðanna í framskautinu, fram- an við hreyfingasvæðin. Og okkur er spurn, hvað gerist, ef þau væru á brott numin. Þetta hefur verið gert og þetta er einmitt sá staður, þar sem skurðlæknirinn hefur dálítið olbogarúm. Við brottnám framskauts heilans, eða öllu heldur, ef slitið er símasambandi hans við aðalheil- ann, kemur ekki til neinna vöðvatruflana eða lamana. Ein- mitt þetta svæði er mun stærra í mönnum en dýrum, eins og sjá má af hinu háa enni mannsins. Afleiðing þess- arar skurðaðgerðar birtist í persónuleika mannsins og hegðun hans. Menn verða rólyndari, ræðnari, andleg þensla og kvíðni minnkar, hneigðin að skipuleggja fram í tímann dvínar, og þjáningar af andlegum uppruna, sem áður voru óbærilegar, liggja í léttu rúmi. En þessi vísindi eru ung, og varlega skyldi troða ókunna stigu. Ef til vill höldum við hér í hendi okkar lyklinum að framtíðarmanninum, persónuleika hans og hæfni, þar sem eitt hnífsbragðið þýðir stóiska ró en ann- að dirfð Promeþevs. Þetta er spurn mín, en hvorki spá né ósk. Enn skyldum við vera þess minnug, að engin skurðaðgerð færir heilanum eiginleika, sem þar eru ekki 54 Heilbrigt líf

x

Heilbrigt líf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.