Heilbrigt líf - 01.12.1956, Side 25

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Side 25
þó aldrei að fullu. Því að jafnvel stöðvar, sem að öllu jöfnu starfa gjörsamlega óháðar, geta á ný verið knúð- ar undir húsbóndavaldið eins og rannsóknir Pawlovs á tömdum svörunum hafa sýnt. Á hinn bóginn geta hinar ósjálfráðu stöðvar öðlazt nægilegt sjálfstæði til þess að starfsemi þeirra villi meðvitund mannsins og komi per- sónuleika hans úr jafnvægi. Þetta er augljósast í svo- nefndum starfrænum sjúkdómum, þegar sá hluti vit- undarstarfsins, sem nefnist dulvitund, orsakar í sam- starfi við hina ósjálfráðu hluta taugakerfisins sjúk- dómseinkenni í líffærum, sem að frádregnum starfstrufl- unum eru í heilbrigðu ástandi. Og nú verður Ijósara, hversu samlíkingin við reikningsvélina getur hjálpað okkur áfram að vissum áfanga í skilningi okkar á minni og lærdómsstarfsemi heilans, en jafnframt, að sú samlíking fylgir okkur aðeins hálfa leið. Meðan um er að ræða móttöku, varðveizlu og endurtekningu þeirra skynjana- heilda, sem til heilans berast, er líkingin greinileg, og auð- velt er að hugsa sér í efna- og raffræðilegum skilningi þær breytingar, sem eiga sér stað í heilanum frá degi til dags, í samræmi við atburði lífsins. Enn getum við teygt samlíkingu okkar lengra og hugsað okkur tæknilegan möguleika á því heimildavali og þeim dómsúrskurðum, sem stöðugt eru á reiðum höndum, eins og sýnt var í dæm- inu um vin okkar á Piccadilly. Hliðstæður slíkrar starf- semi er jafnvel hægt að skapa á vélræna sviðinu, þótt hér gefist ekki tíma til þess að skýra þær nánar. En hér er- um við komin á yztu þröm, og líkinguna við reiknings- vélina þrýtur. Eftir er stökkið frá hinni dásamlega marg- þættu starfrænu hlið heilastarfseminnar yfir í heim með- vitundarinnar. Það er hið efsta þrep, sem vélin hefur enn ekki klifið, hlekkurinn, sem heilinn dylur enn fyrir sjálfum sér. Heilbrigt líf 63

x

Heilbrigt líf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.