Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 31

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 31
Tannkím. Vaxafsteypa af kjálka með frumþykkni og tannkímum úr 10 vikna fóstri. inn til kvikunnar og tannbeinsins. Kvika nefnist band- vefur sá, sem fyllir tannholið. I fyrstu eru rótargöngin jafnvíð opinu í rótarslíðrinu. Þau þrengjast smám sam- an, þegar tannbein myndast neðst í rótinni og sement hleðst utan á hana. Með aldrinum bætast fleiri sement- lög innan í rótaropið, og í kringum það, og þrengjast þá göngin ennþá meir. Framtennur og augntennur hafa einfalda rót, en jaxlar tví- eða þríklofna. Rótarkvíslarinar myndazt þannig, að totur vaxa á tveim, þrem eða fleiri stöðum rótarslíðursins. Smám saman lengjast toturnar og vaxa að lokum saman í bryggjur, sem brúa bilið milli jaðranna. Op, jafnmörg rót- arkvíslunum, verða í neðri hluta slíðursins. I rótarklofinu miðju hefst ummyndun bandvefsins í tannbein og þaðan vaxa ræturnar niður á við, unz fullri lengd er náð. Tennur geta myndazt víðar í líkamanum en í kjálkun- um, t. d. í æxlum í eggjastokkum og heiladingli. Myndun og vöxtur slíkra tanna skeður á sama hátt og í kjálkun- um. Sundum myndazt ekki tennur, svo þær vantar á stöku Heilbrigt líf 69

x

Heilbrigt líf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.