Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 33
UM DÁLEIÐSLU
í Epionu, riti finnska hjúkrunarkvennafélagsins, birt-
ist nýlega útdráttur úr fyrirlestri um dáleiðslu eftir
finnskan lækni, dr. Claes Cedercreutz. Fyrirlesturinn vakti
mikla athygli, eigi sízt vegna þess, að læknirinn hafði
tekið með sér sjúkling, mann, sem misst hafði annan
handlegginn og- þurfti nú að fá endurnýjaða aðgerð, en
það reyndist vera dáleiðsla.
„Heimurinn er fullur af sefjun“, hóf dr. Cedercreutz
mál sitt. „Ef þú mætir kunningja þínum á förnum vegi
og hann segir sem svo: Æ, hvað þú ert þreytulegur, þá
er það sefjun — og þegar fólk les auglýsingu í dagblöð-
unum, að það eigi að kaupa stomatol, þá er það einnig
sefjun. Dáleiðsla er einfaldlega sefjun, sem framkvæmd
er í ákveðnum tilgangi".
Nánar er ekki hægt að skilgreina þetta fyrirbæri, en
svefn er það ekki, það hefur verið hægt að sanna með
röntgentækni. Áheyrendum til mikillar undrunar fullyrð-
ir dr. Cedercreutz, að hver og einn geti dáleitt. En ekki
er hægt að dáleiða hvern sem er. Um það bil helmingur
mannkynsins er móttækilegur fyrir dáleiðslu og af þeim
ástæðum getur þessi aðferð ekki komið að fullum notum.
Með dáleiðslu er hægt að framkalla ýmsar lífeðlisfræði-
legar breytingar, sem hægt er að fylgjast með. Það er
hægt að auka magavökvann og munnvatnsrennslið. Það
er hægt að hækka blóðþrýstinginn og örfa æðasláttinn með
Heilbrigt líf
71