Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 45
Deildin eignaðist í byrjun ársins 1952 nýja sjúkrabifreið og ann-
aðist með henni sjúkraflutninga í bæ og héraði. Þá tryggði deildin
sér einnig afnot af öðrum bíl, sem grípa mætti til í snjóum og
ófærð, sem oft er að vetri til. Er þetta sterkur bíll með drifi á
öllum hjólum og kemst því víða, þar sem sjúkrabíll deildarinnar
kemst ekki. Voru alls árið 1952 farnar 222 ferðir, 153 innanbæjar
og 69 út um héruð.
Þá rak deildin ljósastofu sína eins og áður. Nutu þar ljósbaða
alls 114 í 1942 skipti, þar af voru 80 böm og 34 fullorðnir. Aðsókn
var minni en ella vegna mislingafaraldurs þess, er gekk í bænum
fyrri hluta vetrarins. Veiktust fyrst og fremst af mislingum þeir
aldursflokkar barna, sem ljós sækja hjá stofunni, þ. e. böm innan
skólaskyldualdurs. Er starfsemi þessi vinsæl og gerir áreiðanlega
mikið gagn. Sá frú Helga Svanlaugdóttir um ljósastofuna, en
hafði sér til aðstoðar ungfrú Guðrúnu Halldórsdóttur.
Deildin stóð fyrir söfnun til hjálpar fólki á flóðasvæðum Hollands
og safnaðist kr. 31.500,00.
Merkjasala á öskudaginn gekk betur en nokkru sinni áður og
söfnuðust alls í bænum og nágrenni kr. 11.262.00. Eins og áður önn-
uðust böm úr Bamaskóla Akureyrar merkjasöluna í bænum. Fengu
þau fyrir það ókeypis bíóferð, en Skjaldborgar Bíó var svo vinsam-
legt að veita þeim ókeypis aðgang að skemmtilegi-i mynd.
Deildin naut nokkurs styrks frá bæ og sýslu eins og áður og
hélzt fjárhagur í horfinu og sýndu reikningar kr. 5.642,97 hagnað
eftir reikningsár 1952.
Félagar í árslok voru 430 ársfélagar og 42 ævifélagar.
H afnwrfjarðardeild.
Stjórn deildarinnar skipa:
Ólafur Einarsson, formaður
Björn Jóhannsson, ritari
Hjörleifur Gunnarsson, gjaldkeri
Haraldur Kristjánsson, varaformaður
Ágústa Jónsdóttir
Elísabet Erlendsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir.
Tala meðlima í deildinni: 192. Skuldlaus eign deildarinnar:
Sjúkrabifreið og krónur 18.940,91 í sjóði.
Helztu framkvæmdir á árinu:
Sjúkrabifreiðin annaðist sjúkraflutning í Hafnarfirði, Keflavík
og einnig í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Heilbrigt líf
83