Heilbrigt líf - 01.12.1956, Qupperneq 46
Neskaupstaðardeild.
Stjómin hélt 2 fundi á tímabilinu, og var þar ýmislegt rætt varð-
andi starfsemi deildarinnar.
Annars gekk starfsemin með eðlilegum hætti, þótt fundir væru
ekki haldnir.
Aðalstarfið var rekstur Ijóslækningastofunnar, en hún hefur ver-
ið starfrækt af deildinni vetrarmánuðina öll árin, og hefur aðsókn
oft verið mikil. Frú Kristín Magnúsdóttir hefur annazt um stofuna
með ágætum öll árin.
Annað aðalviðfangsefni deildarinnar var að útvega í bæinn gegn-
umlýsingar- og röntgenmyndatæki. Fengust þau frá Philips í
Hollandi og kostuðu um 36 þús. krónur. Tæki þessi voru gefin
sjúkrahúsi Neskaupstaðar, og afhenti stjórn deildarinnar þau bæj-
arstjóra og héraðslækni til varðveizlu og notkunar hinn 31. marz
1952. Tækjunum var komið fyrir til bráðabirgða í lækningastofu
héraðslæknis, og hafa þau þegar verið notuð nokkuð.
Deildin fékk kvenfélagið Nönnu og Kvennadeild Slysavarnafé-
lags Neskaupstaðar til þess að leggja fram fé til kaupanna, og
lagði hvort félag fram þriðjunginn af kostnaðarverði þeirra.
Þá hefur deildin og annazt merkjasölu o. fl., svo sem venja
hefur verið. Tekjur deildarinnar hafa á tímabilinu numið samtals
kr. 58.756.75. Þar af frá Ijóslækningastofunni um kr. 53 þús.
Gjöldin hafa orðið kr. 62.390.75, og er það rekstur ljósastof-
unnar, framlag til gegnumlýsingartækjanna og árgjöld til R. K. í.
Skuldlaus eign deildarinnar í árslok 1952 er kr. 8.422.50. Félagar
í árslok 1952 eru 76. Þar af eru 2 ævifélagar, 6 styrktarfélagar og
68 ársfélagar.
Fjórir af stofnendum deildarinnar hafa dáið á tímabilinu, 11
flutt til Reykjavíkur og horfið úr félaginu, nokkrir aðrir hafa
og yfirgefið félagsskapinn, en aðrir komið í þeirra stað.
Aðalfundur deildarinnar fyrir yfirstandandi ár var haldinn mánu-
daginn 2. marz s. 1.
Stjórn félagsins skipa nú:
Bjöm Björnsson, formaður
Eyþór Þórðarson, ritari
Kristín Ágústsdóttir, féhirðir
Ingi Jónsson, varaformaður
Kristín Magnúsdóttir, meðstjórnandi
Níels Ingvarsson
Jóhannes Stefánsson.
Fuiltrúi á aðalfundi R. K. f. 1953 var kjörinn Einar Hilmar,
fyrsti formaður deildarinnar. Hann er fyrir alllöngu fluttur burt
af félagssvæðinu, en er samt sem áður fullgildur félagi og áhuga-
samur um starfsemina.
84
Heilbrigt líf