Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 48
48
Umræða um málefni trans fólks og
kyn segin einstak linga undan farið á
mörgum samfélagsmiðlum og í fjöl-
miðlum hefur verið óvægin og rudda leg.
Þar hefur geisað stormur byggður á
hatri og skorti á mannúð. Þessi stormur
hefur líka rifjað upp gamla kvíðann sem
mörg okkur upplifðu í þá daga þegar
málefni homma og lesbía voru hvað
mest til um ræðu á níunda og tíunda
ára tug síðustu aldar. Sérstaklega var sú
óvægna um ræða mörgum okkur erfið
áður en við tókum skrefið og komum
tit randi á beinu num út úr skáp num.
Þetta var nefnilega umræðan sem festi
okkur svo mörg í fjötrum eigin fordóma
og sjálfshaturs því þetta var umræða
byggð á hræðslu, vankunnáttu og botnl-
ausum fordómum. Oftast var talað um
okkur en ekki við okkur. Sjálfskipaðir
fræðingar ruddust fram og vissu allt
um okkur „kynvillingana“, kynhegðun
okkar, ástarlíf, meinta geðveiki, hvernig
við smituðum hvert annað af óeðli legum
hugsunum, hvernig við lögðumst á
börn, hversu takmarkaðar lífslíkur okkar
væru vegna kynhneigðar okkar, hvernig
guð hefði sent okkur HIV-veiruna til að
refsa okkur, hvernig við gætum ekki
verið fjölskylda og alið upp eðlileg börn
og svo framvegis og svo framvegis.
Orðin voru líka hættuleg. Sjálfs skipaðir
verndarar tungu málsins spruttu fram.
Það mátti ekki nota orðin „hommi“ og
„lesbía“ í Ríkis útvarpinu, við máttum
ekki kalla okkur „hjón“. Þar með vorum
við að henda hinni gömlu stofnun,
„hjóna bandinu“, í ruslið. Við máttum
bara ekki vera með!
Það átti að halda okkur frá íþróttastarfi
og tryggja að við færum ekki í sturtu
með öðrum af sama kyni. Það átti að
halda okkur frá opinberum embættum.
Helst átti að loka okkur inni, læsa og
henda lyklinum.
Er ekki merkilegt hvernig allar tilraunir
undirokaðra hópa til betra lífs hafa
í fyrstu verið barðar niður af hinum
sjálfskipuðu sérfræðingum, fulltrúum
yfirvalds og stjórnsemi? Við þekkjum
öll þessi fáránlegu dæmi. Einu sinni
máttu svartir ekki vera í sama al manna-
rými og hvítir, máttu ekki taka sama
strætó! Þeir voru eign hvíta mannsins,
konur eign eiginmannsins. Konur eru
enn að berjast fyrir fullum yfirráðum
yfir eigin líkama! Einu sinni þóttu
almenningssalerni fyrir konur hin mesta
firra. Þær áttu bara að pissa í koppinn
heima hjá sér. Konur máttu líka alls ekki
hlaupa maraþon. Sér stak lega ekki ef
karlmenn voru nærri. Og nú heyrum
við svipað bull í opinberri umræðu,
sérstaklega um trans fólk og kynsegin
Felix BergssonSTYÐJUM
HVERT ANNAÐ
Höfundur er stoltur hommi,
eiginmaður, pabbi og afi
Myndir úr einkasafni
M
yn
di
r
úr
e
in
ka
sa
fn
i