Skinfaxi - 01.03.2016, Síða 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
ANÍTAVALA
Fjölmargir lands- og heimsþekktir íþróttamenn hafa keppt á Unglingalandsmótum UMFÍ
frá fyrsta mótinu á Dalvík árið 1992. Hér er aðeins brot af flottri sögu landsmótanna.
Stjörnur á
Unglingalandsmóti
Vala sló í gegn á
alþjóðlegu móti
á Bíldudal
Stangarstökkvarinn Vala Flosadóttir
lét sig ekki vanta á Unglingalands-
mót UMFÍ í Vesturbyggð um versl-
unarmannahelgina árið 2000. Vala hafði
þá ári fyrr orðið Evrópumeistari í stangar-
stökki 22 ára og yngri árið 1999, með 4,3
metra stökki. Vala keppti reyndar ekki á
sjálfu mótinu enda orðin 22 ára. Vala er
hins vegar uppalin á Bíldudal, æfði þar flest
sem í boði var á íþróttavellinum og þótti
efnilegur stökkvari. Það var því viðeigandi
að efna til alþjóðlegs móts í stangarstökki
á sama tíma og Unglingalandsmótið fór
FÁÐU ÞÉR FRÍTT EINTAK
fram. Þar keppti Vala í fyrsta sinn í heimabyggð við Þóreyju
Eddu Elísdóttur og þrjá aðra heimsþekkta erlenda keppendur.
Í bókinni Vormenn Íslands, sem fjallar um sögu UMFÍ í 100
ár, segir að Vala hafi leikið á als oddi á mótinu og áhorfendur
hafi þyrpst að henni, Vala hafi gefið eiginhandaráritanir á báða
bóga og það blási ungum krökkum kapp í kinn að fara að æfa
íþróttir, jafnvel stangarstökk. Slíkur var áhuginn á keppninni
í stangarstökki að allir Bílddælingar fylgdust með keppninni
og mátti sjá í sjoppuglugga skilti sem á stóð: „Lokað vegna
stangarstökkskeppni.“
Um mánuði eftir alþjóðlega mótið á Unglingalandsmóti
UMFÍ fór Vala yfir 4,5 metra á Ólympíuleikunum í Sidney í
Ástralíu og tryggði sér bronsverðlaun.
Aníta fékk tækifæri til að
ferðast um landið
F rjálsíþróttakonan frábæra, Aníta Hinriksdóttir, hefur
keppt á nokkrum Unglingalandsmótum UMFÍ. Í viðtali
við Skinfaxa árið 2014 sagðist hún alltaf hafa notið sín á
Unglingalandsmótunum og henni hefði þótt gaman að taka
þátt í þeim.
„Unglingalandsmót UMFÍ eru frábær hvert sem litið er, góð
og jákvæð reynsla. Á mótunum hefur ég kynnst mörgum
krökkum og tekið þátt í greinum sem ég er ekki vön að keppa
í. Það hefur verið mjög gaman og góð stemning. Krakkar og
unglingar eiga að nota þetta tækifæri, að keppa við jafnaldra
sína í góðu umhverfi. Þátttakan í mótunum hefur líka gefið
manni tækifæri til að ferðast um landið.“