Skinfaxi - 01.02.2019, Side 25
SKINFAXI 25
Svigrúm til breytinga
Guðmundur segir mikið svigrúm til að gera betur. Slíkar breyt-
ingar eigi ekki að gera með offorsi heldur þurfi að breyta
hugarfari fólks.
„Breytingar af þessu tagi gerast ekki í skyndingu, heldur með
þróun sem tekur tíma. Átakið Sýnum karakter, sem UMFÍ og ÍSÍ
höfðu forystu um að koma af stað til að bæta keppnishugar-
farið, er góð fyrirmynd að svona starfi. Það er mikilvægt að
hefja fána siðbótar á loft innan íþróttanna vegna uppeldisgildis
þeirra og sterkra áhrifa á uppvaxandi æsku.“
Hann nefnir þrjú atriði máli sínu til stuðnings. „Í fyrsta lagi
þarf að auka umræðu um siðferðið með fræðslustarfi innan
félaganna. Í öðru lagi hafa nokkur félög í íþróttum sett sér siða-
reglur eða gildi. Þetta þarf að útvíkka og samræma. Í þriðja
lagi væri snjallt að kjósa árlega heiðarlegustu íþróttamennina
eftir greinum, kynjum og flokkum. Það væri góð viðbót við
Íþróttamann ársins sem margir gagnrýna.“
Íþróttamót ungmennafélaganna hafa löngum verið mikil-
vægar samkomur víða um land. Þessi mynd var tekin af spretthlaupi á
héraðsmóti HSK í Þjórsártúni.
Kristín Rós Hákonardóttir sundkona hlaut aldrei titilinn Íþrótta-
maður ársins en er mikil fyrirmynd hvað heiðarleika og háttvísi varðar,
auk hófsemi í allri framgöngu.
Þorgrímur Þráinsson hefur með íþróttabókum sínum og boðskap
lagt áherslu á heiðarleika í leik og starfi innan íþróttanna.
Íþróttir kvenna hafa átt undir högg að sækja í íþróttahreyfingunni
en nú virðist það vera eitthvað að lagast.
Bók sem nýtist víða
Fyrrnefnd bók Guðmundar fjallar um margt fleira en rannsókn
hans. Hún gefur auk þess góðan grunn til að fræðast um bak-
grunn og þróun þeirra siðferðilegu hugmynda sem viðgengist
hafa innan íþróttaheimsins.
„Ég vona að hún geti nýst sem kennsluefni á námskeiðum
innan ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar og sem kennsluefni
í íþróttaakademíum framhaldsskólanna. Einnig verði hún notuð
við menntun íþróttakennara, íþróttafræðinga og þjálfara í
háskólunum öllum. Loks vona ég að fjölmiðlar geti haft not af
henni sem siðferðilegu viðmiði í íþróttaumfjöllun sinni. Megin-
markmiðið er að bókin stuðli að því að rækta gott siðferði
innan íþróttaheimsins og grisja burt siðferðilegt illgresi hvar og
hvenær sem það kann að koma upp.“