Skinfaxi - 01.02.2019, Síða 34
34 SKINFAXI
Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað
Líf og fjör í Neskaupstað
Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Neskaupstað dagana 28.–30.
júní sl. Þetta var níunda mótið sem haldið er fyrir 50 ára og
eldri. Mótshaldarar voru Ungmenna- og íþróttasamband Austur-
lands (UÍA) ásamt sveitarfélaginu Fjarðabyggð.
Landsmót UMFÍ 50+ í Neskaupstað hófst eins og venja er á
föstudeginum og því lauk á sunnudegi. Mótið var sett með hátíð-
legum hætti í íþróttahúsinu í Neskaupstað og boðið var upp
á heilmikil skemmtilegheit alla helgina, bæði keppni og aðra
afþreyingu á borð við sjósund og zumba fyrir alla fjölskylduna
og alla aldurshópa sem mæltist vel fyrir.
UMFÍ leitast ætíð við
að bjóða upp á nýjung-
ar á viðburðum sínum
og kynna nýja kosti í
hreyfingu. Á mótinu í
Neskaupstað var spilað
í fyrsta sinn í Crossnet.
Því svipar til blaks og er
spilað með blakbolta á
litlu neti í kross með fjóra
velli en einn leikmaður
er á hverjum velli.
Hafði ekki tíma fyrir verðlaun
Bræðurnir Markús og Jón M. Ívarssynir úr Flóahreppi hafa
ætíð keppt í mörgum greinum á mótinu í gegnum tíðina.
Engin breyting var þar á í Neskaupstað og voru þeir
skráðir til leiks í frjálsum. Þeir bræður eru jafnframt í far-
sælu ringóliði HSK. Markúsi gekk vel í frjálsum og hreppti
gull í hástökki. Hann hafði hins vegar engan tíma til að
taka við verðlaununum því að um leið og keppni í frjálsum
lauk var ringólið þeirra Markúsar og Jóns að hefja leik.
Þurftu þeir því frá að hverfa á harðahlaupum. Markús
fór hins vegar ekki af mótinu án gullsins því að Haukur
Valtýsson, formaður UMFÍ, afhenti honum það daginn
eftir keppnina. Þess má geta að sprettur bræðranna
borgaði sig því að ringóliðið þeirra fór með sigur af
hólmi á mótinu.
Lét ekki hönd í fatla stoppa sig
„Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og taka
þátt,“ sagði Harpa Hlín Jónsdóttir frá Ólafsfirði en hún
keppti með eiginmanninum í fjölmörgum greinum í Nes-
kaupstað með hægri handlegg í fatla. Þau hjónin voru að
hita upp fyrir mótið á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum þegar
Harpa datt á hlaupabrautinni og sprunga kom í olnboga-
lið. Harpa var sett í gifs frá öxl og niður að olnboga. Hún
hafði hins vegar skráð sig í fjölda greina ásamt manni sín-
um, ákvað að láta ekki óhappið stöðva sig og keppti í
kúluvarpi, lóðkasti og spjótkasti og fleiri greinum. Til að
bæta gráu ofan á svart er Harpa rétthent og þurfti hún
að nota vinstri höndina í kastgreinum.
„Ég ætlaði auðvitað ekki að sitja og horfa á og barma
mér og ákvað því að kasta með vinstri hendi.“