Skinfaxi - 01.02.2021, Page 4
4 S K I N FA X I
F jöldi kvenna hefur stigið fram síðustu
mánuði og sagt frá grófu kynferðis-
legu ofbeldi í íslensku samfélagi. Það
sem slær fólk við frásagnirnar er að þetta
eru ekki sögur af misheppnuðum bröndur-
um eða viðreynslu. Þvert á móti eru þetta
persónulegar sögur af grófu líkamlegu
ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Því miður
hefur stór hluti þessara frásagna borist úr
íþróttahreyfingunni.
Margar sögurnar eru ljótar, svo grimmi-
legar, að í raun eru eðlileg viðbrögð utan-
aðkomandi að loka augunum fyrir þeim. Á
sama tíma er efast um sannleiksgildi þeirra
og sárin sem þolandi hefur hlotið af ofbeldi.
Líkamleg sár gróa fyrr en þau á sálinni. Þar
lifa kaunin lengi. En þó vissulega megi efast
um einstök mál – með sama hætti og hægt
er að efast um allt á milli himins og jarðar
– verður ekki litið fram hjá heildarmyndinni.
Sögurnar af ítrekuðu og grófu kynferðislegu
ofbeldi eru margar og ljótar. Við getum ekki
lokað augunum fyrir því að íþróttafólk er
því miður líka á meðal gerenda.
Við verðum að hlusta!
Enginn lærir neitt á augnabliki og þeirri
menningu sem sögð er þrífast í búnings-
klefa íþróttafélaga verður ekki breytt eins
og hendi væri veifað. Hefðir og hegðun
breytast í tímans rás. Þær mótast innan
ramma, innan stefnumótunar og með þeim
bjargráðum sem til staðar eru, fyrir þolend-
ur ekki síður en gerendur. Við verðum að
hlusta og hafa vitneskju um leiðirnar sem
við, og í raun allir innan radíus ofbeldismála,
þurfa að þekkja, til að vita hvert eigi að fara,
hvert eigi að leiða málið og koma því í far-
veg. Það versta fyrir alla, bæði þolendur og
meinta gerendur, er að mál þeirra endi inn-
an íþróttafélaganna sjálfra. Það eru verstu
mögulegu aðstæðurnar til að greina mál af
hvaða tagi sem þau kunna að nefnast. Svo
ég nefni nú úrlausn mála og málalyktir. Öll
úrvinnsla verður að vera utan félagsins, utan
heimavallar og nærumhverfis. Að öðrum
kosti er alltaf meiri hætta en minni á því að
halli á hlut annars einstaklings í málinu – og
hvorki er vissa fyrir því að sekt sé sönnuð né
viðeigandi aðstoð í boði fyrir alla málsaðila.
Vöndum okkur
Það tekur tíma fyrir marga að átta sig
á breyttri hugsun, breyttum viðmið-
um og nýjum persónulegum mörk-
um. Sú tíð er sem betur fer liðin að
fólk þegi, loki augunum fyrir and-
legu og líkamlegu ofbeldi sem það
sjálft og aðrir verða fyrir og sætti sig
við tárin í einrúmi.
Ungmenna- og íþróttahreyf-
ingin hefur þegar stigið mörg
þung skref til að vinna bug á
óæskilegri hegðun. Málum
af öllum toga er mögulegt að
vísa til Æskulýðsvettvangsins,
sem hefur tekið við málum
sem þessum síðastliðinn ára-
tug, og til samskiptaráðgjafa
íþrótta- og æskulýðsstarfs,
sem mennta- og menningarráðherra stofn-
aði eftir fyrstu #metoo-bylgjuna árið 2018.
Þangað getur íþróttafólk leitað með öll mál,
af hvaða toga sem er.
Veganesti inn í framtíðina
Þessar leiðir eru dæmi um þær miklu fram-
farir sem orðið hafa á undanförnum árum
innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfing-
arinnar. Við erum sífellt að læra af fortíðinni
og bæta starfið fyrir kynslóðir framtíðarinnar.
Á þessu ári hefur staðið yfir umfangs-
mikil stefnumótunarvinna innan UMFÍ og
hefur hún verið unnin í nánum samræðum
við sambandsaðila og aðildarfélög um allt
land. Stefnan styður við fjölmörg umbóta-
og samstarfsverkefni hreyfingarinnar og
hvetur til samræmdra verkferla.
Öðru fremur er stefna UMFÍ lif-
andi skjal inn í framtíðina, stefna
fyrir hvern og einn þar sem allir
eru með. Þar sem allir geta tjáð
sig og hlustað og trúað. Það er
samfélaginu til góða.
Gunnar Gunnarsson,
meðstjórnandi í stjórn
UMFÍ og fyrrverandi
formaður Ungmenna-
og íþróttasambands
Austurlands (UÍA).
Efnisyfirlit
12 Uppistandari með skipstjórnarréttindi
í Ungmennabúðum UMFÍ
18 Hefði viljað vita í hvern ætti að hringja
– Hnefaleikafélag Kópavogs í Covid
32 Mikill lærdómur að vera sjálfboðaliði
– Hjörleifur í Fjölni
Leiðari Hlustum og lærum fyrir framtíðina
14 Einstakur árangur nágrannafélaga
– Hamar og Þór Þorlákshöfn
6 Íþróttafélagið Þingeyingur
8 Borðhokkí er íþrótt fyrir alla
10 Miklar breytingar á styrkjaumhverfi
íþrótta- og ungmennafélaga
11 Hrósa ungmennafélögum á Facebook
15 Bæjarbúar eiga liðið og gleðjast saman
16 Markmið okkar eru ekki bara íþróttaleg,
heldur líka félagsleg
20 Ein viðbragðsáætlun fyrir allt íþrótta-
og æskulýðsstarf
21 24 mál komu inn á borð samskipta-
ráðgjafa árið 2020
21 Mörg félög eru að fara betur yfir reglurnar
22 Mikill áhugi á námskeiðinu Verndum þau
23 Brot geta haft áhrif á félagasamtök
24 Ein tilkynning er einni of mikið
25 Málum fjölgaði mikið milli ára
26 Hver er staðan innan UMFÍ?
29 Þúsundir krakka skemmta sér í Skólablaki
30 Nýtt fólk hjá sambandsaðilum UMFÍ
34 Það sem íþróttir hafa gefið mér
36 Vill að skólar byrji seinna á morgnana
39 Fræðslu- og verkefnasjóður fyrir félögin
41 Hlakkar til að skipuleggja mótið
í þriðja sinn
42 Börn eignast nýja vini í rafíþróttum
43 Ertu með góða hugmynd að verkefni?