Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2021, Síða 41

Skinfaxi - 01.02.2021, Síða 41
 S K I N FA X I 41 Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2021 var langt kominn á Selfossi þegar viðburðinum var frestað í annað sinn. Guðríður Aadnegard, formaður HSK, segir svo skemmtilegt að vinna við mótið að hún hlakki til. Unglingalandsmótið átti að fara fram síðastliðna verslunarmannahelgi. Eins og svo mörgum öðrum viðburðum þurfti að fresta því um ár vegna kórónuveirufaraldursins. Allir ákváðu að styðja mótið áfram Mótshaldarar á Selfossi eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og Sveitarfélagið Árborg og var þetta í annað skiptið á jafnmörg- um árum sem skipuleggjendur voru með allt klárt þegar öllu var frestað á ný. Guðríður segir þetta auðvitað bagalegt. Allir hafi þó ákveðið að styðja áfram við mótið. Nánast allir gefendur verðlauna frá því 2019 hafi haldið áfram og sérgreinastjórarnir líka. „Við vonum auðvitað að staðan verði óbreytt á næsta ári. Mótið í ár hefði verið að einhverju leyti öðruvísi en önnur Unglingalands- mót þar sem rafíþróttirnar áttu að koma inn en þær hafa ekki verið áður. Það verður því spennandi að sjá hvernig rafíþróttirnar koma inn næsta sumar,“ segir hún. Gaman að sjá gleðina sem skín úr augum Guðríður hefur verið á mörgum mótum UMFÍ í gegnum tíðina og henni finnast þau alltaf jafnskemmtileg. „Það sem mér finnst skemmtilegast við Unglingalandsmótið er að sjá gleðina sem skín úr augum þátttakenda og vináttuna og samheldnina sem skapast þar,“ segir hún. Frábær aðstaða í Sveitarfélaginu Árborg Guðríði finnst líka skemmtilegt að vinna að undirbúningnum og tekur sérstaklega fram hversu gaman sé að vinna að mótinu í Árborg. „Árborg býr yfir svo frábærri aðstöðu og hérna er allt til alls. Það er gaman að sjá hvað nefndinni dettur í hug. Það er hægt að keyra allt í framkvæmd og það er gaman að sjá draumana sína verða að veruleika. Það er líka mikil samheldni, jákvæðni og metn- aður hjá stjórnendum Árborgar, sem er frábært,“ heldur hún áfram og bendir á að kröftugt fólk búi á Selfossi og allt um kring á HSK-svæðinu. Allir séu tilbúnir að leggjast á árarnar. Rosalegur kraftur í fólki „Það er rosalegur kraftur í fólki og þetta er mjög íþróttasinnaður landshluti. Mér finnst þetta líka svo skemmtileg vinna. HSK-svæðið er góður staður til að halda landsmót og það eru allir fullir tilhlökk- unar að takast á við þetta aftur,“ segir hún að lokum. Hlakkar til að skipuleggja mótið í þriðja sinn

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.