Skinfaxi - 01.02.2021, Síða 41
S K I N FA X I 41
Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2021
var langt kominn á Selfossi þegar viðburðinum
var frestað í annað sinn. Guðríður Aadnegard,
formaður HSK, segir svo skemmtilegt að vinna við
mótið að hún hlakki til.
Unglingalandsmótið átti að fara fram síðastliðna
verslunarmannahelgi. Eins og svo mörgum öðrum
viðburðum þurfti að fresta því um ár vegna
kórónuveirufaraldursins.
Allir ákváðu að styðja mótið áfram
Mótshaldarar á Selfossi eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK)
og Sveitarfélagið Árborg og var þetta í annað skiptið á jafnmörg-
um árum sem skipuleggjendur voru með allt klárt þegar öllu var
frestað á ný.
Guðríður segir þetta auðvitað bagalegt. Allir hafi þó ákveðið að
styðja áfram við mótið. Nánast allir gefendur verðlauna frá því 2019
hafi haldið áfram og sérgreinastjórarnir líka.
„Við vonum auðvitað að staðan verði óbreytt á næsta ári. Mótið
í ár hefði verið að einhverju leyti öðruvísi en önnur Unglingalands-
mót þar sem rafíþróttirnar áttu að koma inn en þær hafa ekki verið
áður. Það verður því spennandi að sjá hvernig rafíþróttirnar koma
inn næsta sumar,“ segir hún.
Gaman að sjá gleðina sem skín úr augum
Guðríður hefur verið á mörgum mótum UMFÍ í gegnum tíðina
og henni finnast þau alltaf jafnskemmtileg. „Það sem mér finnst
skemmtilegast við Unglingalandsmótið er að sjá gleðina sem skín
úr augum þátttakenda og vináttuna og samheldnina sem skapast
þar,“ segir hún.
Frábær aðstaða í Sveitarfélaginu Árborg
Guðríði finnst líka skemmtilegt að vinna að undirbúningnum
og tekur sérstaklega fram hversu gaman sé að vinna að mótinu í
Árborg.
„Árborg býr yfir svo frábærri aðstöðu og hérna er allt til alls.
Það er gaman að sjá hvað nefndinni dettur í hug. Það er hægt að
keyra allt í framkvæmd og það er gaman að sjá draumana sína
verða að veruleika. Það er líka mikil samheldni, jákvæðni og metn-
aður hjá stjórnendum Árborgar, sem er frábært,“ heldur hún
áfram og bendir á að kröftugt fólk búi á Selfossi og allt um kring á
HSK-svæðinu. Allir séu tilbúnir að leggjast á árarnar.
Rosalegur kraftur í fólki
„Það er rosalegur kraftur í fólki og þetta er mjög íþróttasinnaður
landshluti. Mér finnst þetta líka svo skemmtileg vinna. HSK-svæðið
er góður staður til að halda landsmót og það eru allir fullir tilhlökk-
unar að takast á við þetta aftur,“ segir hún að lokum.
Hlakkar til að skipuleggja
mótið í þriðja sinn