Skinfaxi - 01.02.2021, Síða 10
10 S K I N FA X I
Miklar breytingar
á styrkjaumhverfi
íþróttafélaga
Gott að kynna
sér málið
UMFÍ hvetur stjórnendur í íþróttahreyf-
ingunni til að kynna sér skattaafsláttinn
sem innifalinn er í frumvarpi til laga um
breytingar á ýmsum lögum um skatta
og gjöld almannaheillafélaga.
Stjórnendur íþróttafélaga geta jafn-
framt nýtt sér fleiri tækifæri sem stjórn-
völd gefa kost á í tengslum við heims-
faraldur kórónuveirunnar. Þar á meðal
er:
• 100% endurgreiðsla á virðisauka-
skatti af vinnu.
• Undanþága frá greiðslu erfðafjár-
skatts og ýmsar aðrar skattalegar
ívilnanir sem gagnast félögum.
• Heimild fyrir frádrætti af tekjum af
atvinnurekstri er einnig aukin en nú
mega atvinnurekstraraðilar draga
allt að 1,5% af skattskyldum tekjum
vegna framlaga til almennaheilla-
samtaka. Með lögunum er einnig
dregið úr skattaálögum almanna-
heillasamtaka, t.a.m. vegna fjár-
magnstekjuskatts og virðisauka-
skatts af vinnu við endurbætur hús-
næðis.
Gera má ráð fyrir því að styrkjaumhverfi
íþróttafélaga breytist talsvert í nóvember.
Þá taka gildi lög um frádráttarbærni vegna
styrkja við almannaheillafélög og aðrar
góðar breytingar sem beðið hefur verið eftir.
Þann 1. nóvember næstkomandi breytist
lagaumhverfi íslenskra almannaheillasam-
taka verulega með gildistöku laga um félög
til almannaheilla og ýmsum nýjum ákvæð-
um skattalaga. Með lögunum er einstakl-
ingum gert kleift að draga frá skattskyldum
tekjum sínum, það sem nemur að lágmarki
10.000 kr.- og að hámarki 350.000 kr.- á
hverju ári, vegna gjafa og framlaga til lög-
aðila sem vinna að almannaheillum, þar
með talin íþróttafélög.
Skilyrði frádráttar er að lögaðili, sem hef-
ur með höndum starfsemi til almannaheilla,
sé skráður í almannaheillafélagaskrá hjá
Skattinum á því tímamarki þegar gjöf er
afhent eða framlag er veitt og upplýsingar
um fjárhæð fjárframlags hafi verið móttekn-
ar frá viðtakanda til áritunar á skattframtal.
Almannaheillasamtök þurfa í þessu sam-
bandi að huga að skráningu undir fyrrnefndu
lögin og í svonefnda almannaheillafélaga-
skrá, sem er grundvöllur fyrir mörg af þeim
réttindum samtakanna sem fylgja nýju lög-
unum. Íþróttafélög og önnur almannaheilla-
félög þurfa að undirbúa sig fyrir að leið-
beina styrktaraðilum sínum um hvernig
áhrifaríkast sé að reiða stuðninginn af hendi
þannig að komi að sem mestu gagni fyrir
gefendur og þiggjendur.
Útfærsla nýju laganna liggur ekki endan-
lega fyrir en verið er að semja reglugerð
með lögunum, sem og reglur og leiðbein-
ingar Skattsins.