Skinfaxi - 01.02.2021, Page 11
S K I N FA X I 11
Hrósa ungmennafélögum
frá Langanesi á Facebook
Alltaf er gaman þegar fólki er hrósað fyrir vel unnin verk. Í því felast þakkir fyrir
góða vinnu en líka hvatning til allra um að leggja af mörkum, hvort heldur er
innan íþróttavallar eða í félagsstarfi utan hans. Ekkert vantar upp á samstöðuna
hjá Ungmennafélagi Langnesinga (UMFL) á Þórshöfn. Félagið er býsna virkt félag, bæði
í íþróttum en líka á samfélagsmiðlum, sérstaklega Facebook. Gaman er að fylgjast með
Facebook-síðu félagsins og má oft og tíðum lesa þar um árangur Langnesinga og þeirra
sem hafa flutt á braut.
Það er full ástæða til að hrósa Langnesingum fyrir virka, skemmtilega og hvetjandi
Facebook-síðu. Vel gert!
Nokkrir brottfluttir Langnesingar gera það gott
Crossfittarinn Björgvin Karl Guð-
mundsson átti heima á Þórshöfn
fyrstu æviárin. Hann hefur, eins og
alþjóð veit, gert það gott í CrossFit,
nældi sér í 4. sætið á heimsleikunum í
CrossFit árið 2021 og varð m.a. í 1. sæti
í einni grein á leikunum. UMFL styður
við sinn mann og á Facebook-síðunni
er því lýst yfir að fólk hafi fulla trú á að
hann nái 1. sæti á næstu heimsleikum.
Guðmundur Snorri Sigurðsson
er brottfluttur UMFL-ari og Íslands-
meistari í rallýi. Á Facebook-síðu UMFL
segir frá því þegar hann kom, sá og
sigraði í fjallarallý helgina 7.–8. ágúst
2021. Keppendur komu frá Íslandi,
Spáni, Frakklandi og Bretlandi auk
liða frá Land-Rover. Keppnin var fimm
sinnum lengri en tíðkast á Íslandi þar
sem bæði reyndi á þol ökumanna og
rallýakstur. „Þetta er því RISA SIGUR
hjá okkar manni og óskar stjórn UMFL
Gumma innilega til hamingju með
stórglæsilegan sigur. ÁFRAM UMFL!“
segir á Facebook-síðu UMFL.
Ungmennafélagar af Langanesi eru á
fleiri stöðum. Til dæmis má horfa til
Pepsí Max-deildar karla í fótbolta en
þar spilar Adam Árni Róbertsson
með Keflavík. Stjórn UMFL skrifar á
Facebook-síðu félagsins að þau séu
mjög stolt af honum og að Adam sé
mikil fyrirmynd fyrir unga iðkendur í
UMFL.
En íþróttir eru ekki allt því að ung-
mennafélög landsins tengjast leiklist
nánum böndum. Það gleymist ekki
hjá UMFL, sem óskar leikaranum Jóel
„okkar” Sæmundssyni til hamingju
með tilefningu til Eddunnar í ár í flokkn-
um Leikari í aukahlutverki, í leikritinu
Vesalings elskendur. Stjórnin segist í
kveðju sinni viss um að hann mæti í
búningi UMFL þegar hann tekur á
móti verðlaununum.