Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.2021, Page 21

Skinfaxi - 01.02.2021, Page 21
 S K I N FA X I 21 Tilkynningar til samskiptaráðgjafa á árinu 2020 hafa verið flokkað- ar í eftirfarandi flokka; eineltismál, líkamlegt ofbeldi og kynferðis- leg áreitni eða ofbeldi. Einnig hafa mál sem varða aðra óæskilega hegðun eða framkomu verið sett í sérflokk auk þess sem einhver mál flokkast undir annað. Samskiptaráðgjafi lauk 12 málum árið 2020 eða helmingi þeirra sem embættinu bárust. Tíu mál voru í vinnslu í lok árs 2020. Tvö mál voru í eftirfylgd í lok árs 2020. Það eru mál sem teljast leyst eða unnið úr og málsaðilum er gefinn tími til að hrinda tilmælum/ úrbótum í framkvæmd. Öll mál, sem bárust samskiptaráðgjafa á árinu 2020, voru innan íþróttahreyfingarinnar. 24 mál komu inn á borð samskiptaráðgjafa árið 2020 Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs (lengst til hægri), ásamt sálfræðingum Domus Mentis – Geðheilsu- stöð sem jafnframt eru í íþróttateymi stofunnar. Frá vinstri: Þóra Sigfríður Einarsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri, Edda Sigfús- dóttir, sálfræðingur, sem sinnir m.a. áfallastreituröskunum, Grímur Gunnarsson sálfræðingur og Silja Runólfsdóttir, sálfræðingur, sem sinnir m.a. meðferð við kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati. 8 kynferðisleg áreitni eða ofbeldi 6 eineltismál 1 líkamlegt ofbeldi 2 óæskileg hegðun 6 leiðbeiningar 1 annað mál11 mál varða fullorðna einstaklinga 9 mál varða börn 10 mál í ferli 20 mál ráðgjöf og stuðningur Tugir mála af ýmsum toga eru á borði Æskulýðsvettvangsins. Marg- ir óska eftir faglegri ráðgjöf og aðstoð við að leysa úr málum. Tíu mál hafa verið í formlegu ferli innan Æskulýðsvettvangsins á síðast- liðnum tólf mánuðum. Auk þess hefur verið óskað eftir stuðningi og ráðgjöf í tvöfalt fleiri málum. Á meðal þeirra mála eru kynferðis- brot, einelti og ofbeldismál. Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins, seg- ir að álagið hafi aukist í kjölfar hins svokallaða KSÍ-máls þar sem margir hafa óskað eftir faglegri ráðgjöf og aðstoð við að leysa úr málum sem hafa komið upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi. En vel megi vera að einhver þeirra hafi verið óleyst eða í pattstöðu. Mörg félög eru að fara betur yfir reglurnar „Mörg félög hafa verið að fara yfir reglur, viðbragðsáætlanir og verklag hjá sér í kjölfarið til að ganga úr skugga um að slíkt sé í lagi og óskað eftir aðstoð við úrbætur á þeim þar sem þörf var á,“ segir Sema að lokum.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.