Skinfaxi - 01.02.2021, Page 22
22 S K I N FA X I
„Það hefur alltaf verið mjög mikil eftirspurn
eftir námskeiðum Æskulýðsvettvangsins. Nú
fáum við mikið af fyrirspurnum um námskeið-
ið Verndum þau frá aðilum sem standa utan
við Æskulýðsvettvanginn. Það er mjög gott
enda fá starfsfólk og sjálfboðaliðar mikilvæga
þekkingu inn í starf sitt með námskeiðinu. Það
er mikilvægt fyrir allt íþrótta- og æskulýðsstarf
að auka þekkingu fólks á barnavernd, það ger-
ir starfið faglegra,“ segir Sema Erla Serdar,
framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins.
Mikil eftirspurn hefur verið í haust eftir nám-
skeiðinu Verndum þau, sérstaklega frá aðilum
sem standa utan við Æskulýðsvettvanginn.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa
með börnum og ungmennum og öðrum
áhugasömum um viðfangsefnið. Efni nám-
skeiðsins er byggt á efni samnefndrar bókar
og fjallar um það hvernig bregðast eigi við
grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum
og ungmennum.
Æskulýðsvettvangurinn hefur staðið fyrir
námskeiðunum frá árinu 2010. Árlega hafa
verið haldin 5–10 námskeið.
Umsjónarmenn námskeiðsins eru höfundar
samnefndrar bókar, þær Ólöf Ásta Farestveit,
uppeldis-, afbrota- og fjölskyldufræðingur,
og sálfræðingurinn Þorbjörg Sveinsdóttir.
Þær starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla
reynslu af barnaverndarmálum.
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir:
• Tilkynningaskyldu starfsmanna sem
vinna með börnum og unglingum
• Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt
ofbeldi og vanrækslu hvers konar
• Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn
• Reglur í samskiptum við börn og ung-
menni
• Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveit-
endur að hafa í huga
• Úrræði sem í boði eru í samfélaginu
fyrir börn og unglinga sem eru þol-
endur ofbeldis
Mikill áhugi á námskeiðinu
Verndum þau
Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir fjölda námskeiða til að auka fræðslu og
þekkingu í félags- og æskulýðsstarfi. Þúsundir einstaklinga hafa setið námskeiðin.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM
og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands.
Æskulýðsvettvangurinn var stofnaður árið 2007 en formleg stofnun fór fram sumarið
2012. Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og
ungmenna. Tilgangur og markmið félagsins eru að stuðla að samræðu og samstarfi
aðildarfélaganna á sviði leiðtogaþjálfunar, fræðslu- og forvarnamála, útbreiðslu og
kynningar sem og á öðrum sviðum eftir því sem þurfa þykir. Tilgangi sínum og mark-
miðum hyggst félagið ná með því að standa fyrir námskeiðum, ráðstefnum og öðrum
sameiginlegum verkefnum sem lúta að hagsmunum barna og ungmenna.
Áhugasamir geta pantað námskeiðið eða
fengið ítarlegri upplýsingar um það með því
að senda tölvupóst á aev@aev.is eða hringja í
þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568 2929.
Nánari upplýsingar um Æskulýðsvettvanginn
og námskeiðið eru á www.aev.is