Skinfaxi - 01.02.2021, Blaðsíða 24
24 S K I N FA X I
Ungmennafélagið Fjölnir hefur í gegnum tíðina unnið að
ýmsum málum sem tengjast forvarnastarfi og hefur átt
samstarf við fjölmarga aðila tengda barna- og ungl-
ingastarfi. Í ljósi umræðunnar í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum
síðustu mánuði, varðandi ofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar, var
rætt við Guðmund L. Gunnarsson, framkvæmdastjóra Fjölnis,
um það hvernig ofbeldismál eru sett í faglegt ferli.
„Það er þægilegt að hafa ferli til að setja málin í, það er einfalda
myndin. Þau sem koma að svona málum vita í raun ekkert um þau
og því er gríðarlega mikils virði fyrir félögin að hafa hlutlaust teymi
til að taka á málunum. Við höfum sem betur fer ekki lent í neinum
alvarlegum málum. En þau eru óþægileg. Hvernig sem þau eru, er
gott að hafa farveg til að koma þeim á rétta staði,“ segir Guðmundur.
„Við treystum því að málunum sé fylgt eftir inni hjá Æskulýðs-
vettvanginum og við fundum jafnvel með þeim. Stundum þarf að
taka ákvörðun um það hvað eigi að gera. Við reynum, ef við erum
í vafa um málið, að leyfa iðkandanum að njóta vafans. Það er ekki
þar með sagt að fólk, sem hafi gert eitthvað af sér, fari frá okkur og
fari jafnvel eitthvað annað til að þjálfa,“ segir hann einnig.
Mikilvægt að sofna ekki á verðinum
Innan Fjölnis er lögð áhersla á að stjórnendur viti til hvaða ráða
eigi að grípa komi upp ofbeldismál innan félagsins. Þetta er gert
svo að hægt sé að taka á málum af festu.
„Það er hægt að senda tilkynningu um ofbeldisbrot inn á heima-
síðuna okkar, www. fjolnir.is, eða senda tilkynningu beint til tilkynn-
ingaraðila Fjölnis sem eru taldir upp á heimasíðunni. Yfirleitt er
það Fríða, Málfríður Sigurhansdóttir, íþrótta- og félagsmálafulltrúi
Fjölnis, sem kallar inn í spjall, þann sem tilkynnir ofbeldisbrotið.
Síðan er leitað áfram til Æskulýðsvettvangsins og þau taka við
boltanum,“ heldur Guðmundur áfram og bætir við að miðað við
stærð og umfang félagsins hafi ekki mörg mál komið á borð stjórn-
enda Fjölnis.
„En ein tilkynning er einni of mikið. Það eru kannski tvö mál á ári
sem krefjast þessa farvegs, en það hafa sem betur fer ekki verið
gróf, vond mál. Tilkynningarnar hætta þó ekkert að koma þó að
umræðan sé í gangi. Þeim hefur samt ekki fjölgað eftir umræðuna
síðustu vikur og mánuði,“ segir Guðmundur og bætir við að mikil-
vægt sé að sofna ekki á verðinum.
„Þetta er bara eilífðarverkefni. Þegar mál kemur upp er oft mikill
hasar í kringum það. Umræðan fer yfirleitt úr böndunum. Það er
gott að Æskulýðsvettvangurinn og aðrir álíka vettvangar séu lif-
andi og minni félögin reglulega á sig og séu sýnilegir,“ segir Guð-
mundur að lokum.
Guðmundur í Fjölni:
Ein tilkynning
er einni of mikið
Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.