Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.2021, Qupperneq 25

Skinfaxi - 01.02.2021, Qupperneq 25
 S K I N FA X I 25 Mikilvægt að tryggja öruggt íþróttaumhverfi fyrir alla iðkendur „Töluvert fleiri tilkynningar hafa borist eftir að KSÍ-málið kom upp,“ segir Birta Björnsdóttir, verkefnastjóri jafnréttis- og ofbeldismála hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR). Árið 2021 er einsdæmi mið- að við fyrri ár. Talsvert fleiri mál koma inn á borð ÍBR á hverju ári. Það má m.a. skýra með því að oftar eru nýtt tækifæri til að benda á leiðir til að segja frá málum sem tengjast óæskilegri hegðun innan íþróttahreyfingarinnar og skýra farveginn sem málin fara í. Árið 2019 komu fjögur mál á borð ÍBR og níu í fyrra. Það sem af er ári hafa hvorki fleiri né færri en 43 mál af ýmsu tagi borist ÍBR frá aðildarfélögum íþróttabandalagsins. Alvarlegustu málin eru ýmist tilkynnt til lögreglu eða barnaverndar. Birta flutti athyglisvert erindi um aðgerðir ÍBR og leiðirnar fyrir Birta hjá ÍBR: Málum fjölgaði mikið milli ára Tölfræði það sem af er ári 2021 Fjöldi mála eftir tegund 2021 Andlegt ofbeldi 13 30% Líkamlegt ofbeldi 8 19% Kynferðislegt ofbeldi 9 21% Kynferðisleg áreitni 7 16% Einelti 4 9% Annað* 2 5% Samtals 43 100% *Þau mál sem eru flokkuð undir annað eru ekki beint ofbeldismál, heldur til dæmis sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaði eða annað þar sem tekið er á máli. Birta Björnsdóttir, verkefnastjóri jafnréttis- og ofbeldismála hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR). þolendur á ráðstefnunni „Íþróttir fyrir alla“ í febrúar sl. Ráðstefnan var hluti af Reykjavíkurleikunum. Birta sagði fatlað íþróttafólk oftar þolendur kynferðisofbeldis en aðrir, hinsegin fólk og kynsegin og fólk af erlendum uppruna ásamt afreksíþróttafólki sem geri allt til að ná langt í sinni grein. „Þetta viljum við ekki. Við viljum tryggja að allir verði í öruggu íþróttaumhverfi,“ sagði Birta og lagði áherslu á að íþróttahreyfing- in vilji fá öll mál upp á yfirborðið svo að iðkendur geti rætt um þau og leyst frá skjóðunni ef svo ber undir.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.