Skinfaxi - 01.02.2021, Síða 30
30 S K I N FA X I
N ýjum stjórnendum hefur fjölgað
nokkuð hjá sambandsaðilum UMFÍ
á árinu og hefur hlutfall kvenna auk-
ist talsvert á milli ára.
„Það er mjög gott að koma inn sem nýr
starfsmaður í íþróttahreyfingunni. Starfið er
flott hjá UMFÍ og ÍSÍ og til ykkar get ég leitað
með allt,“ segir Dagný Finnbjörnsdóttir, sem
tók við sem framkvæmdastjóri Héraðssam-
bands Vestfirðinga (HSV) af Bjarka Stefáns-
syni.
Dagný útskrifaðist með stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Ísafirði 2008 og öðlaðist
meistararéttindi í snyrtifræðum frá Verkmennta-
skólanum á Akureyri 2020. Frá 2015 hefur
Dagný verið annar eigandi fataverslunarinnar
Jóns og Gunnu ehf. og hefur því umtalsverða
reynslu af rekstri.
Dagný hefur tengst íþrótta-
hreyfingunni frá barnæsku
Dagný er fædd og uppalin í Hnífsdal og hef-
ur verið viðloðandi íþróttahreyfinguna alla tíð.
„Ég byrjaði sjálf ung í körfubolta og svo fyrir
um sjö árum kom ég inn í barna- og unglinga-
starfið, sem foreldri og svo körfuknattleiks-
þjálfari frá árinu 2017,“ segir Dagný og bætir
við að bæði sé skemmtilegt og fróðlegt að
koma inn sem nýr framkvæmdastjóri HSV,
þótt það sé áskorun.
Þegar Dagný var starfsmaður í barna- og
unglingastarfinu í körfuboltanum nýtti hún
sér þjónustu UMFÍ og leitaði sér upplýsinga
um styrki o.fl. „Það er mjög gott að koma inn
sem nýr starfsmaður og geta leitað til ykkar
með allt. Framtíðin hjá HSV er mjög björt,
mikil uppbygging í öllum deildum innan HSV
og mér finnst orðið meira samstarf á milli allra
hér á Vesturlandi,“ segir Dagný að lokum.
Hluti nýrra formanna og framkvæmdastjóra 2021
Guðný Lilja Pálsdóttir kom til starfa sem
framkvæmdastjóri Héraðssambandsins
Hrafna-Flóka (HHF) í ágúst.
Benedikt Jónsson (t.h.) tók við af Gunnari
Gunnarssyni (t.v.) sem formaður Ungmenna-
og íþróttasambands Austurlands (UÍA) í apríl.
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir tók
við sem sambandsstjóri Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar (UMSB) í mars. Við starfi
framkvæmdastjóra tók tímabundið Sigríður
Dóra Sigurgeirsdóttir.
Guðmundur Sigurbergsson tók við af
Valdimari Leó Friðrikssyni sem formaður
Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK)
í febrúar.
Hlutfall kynja hjá sambandsaðilum UMFÍ
Formenn:
43% konur 57% karlar
Framkvæmdastjórar:
36% konur 64% karlar
Nýtt fólk hjá sambandsaðilum UMFÍ: