Skinfaxi - 01.02.2021, Blaðsíða 32
32 S K I N FA X I
„Sjálfboðaliðastarfið hefur gefið mér rosa-
lega mikið. En svo fær maður reynslu bæði
í stjórnunarstörfum, viðburðastörfum og
samningaviðræðum ásamt mörgu öðru,“
segir Hjörleifur Þórðarson, ritari stjórnar
knattspyrnudeildar Ungmennafélagsins
Fjölnis í Grafarvogi. Hann mælir með því
að fólk taki að sér sjálfboðaliðastörf, þótt
ekki sé nema vegna tengslanetsins, sem
gagnist mjög vel í daglegu lífi.
Þann 5. desember ár hvert er haldið upp
á dag sjálfboðaliðans. Það hefur verið gert
frá árinu 1985 þegar Sameinuðu þjóðirnar
tilnefndu daginn sem Alþjóðlegan dag sjálf-
boðaliðans. Tilgangurinn með deginum er
að vekja athygli á framlagi sjálfboðaliða í
samfélaginu. Sjálfboðaliðastörf hafa verið
uppistaðan í öllu starfi UMFÍ frá því að hreyf-
ingin var stofnuð árið 1907. Sjálfboðaliða-
starf felst oftast í því að einstaklingur legg-
ur fram vinnu sína sjálfviljugur án þess að
þiggja fyrir það laun. Þó að laun í formi
peninga séu ekki þegin fyrir sjálfboðaliða-
starf eru það oft launin í formi þakklætis sem
eru svo gefandi og eitthvað sem fólk fær
ekki alltaf fyrir launuð störf. Það er þó mis-
jafnt eftir löndum og tíma hvernig sjálfboða-
liðastörfin eru skilgreind. Víðtæk sátt er þó
um þá skilgreiningu að sjálfboðin störf séu
störf í þágu annarra en sjálfs sín og nánustu
ættingja.
Sjálfboðaliðastörf skipa stóran sess innan
íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinn-
ar. Ástæður fyrir því að fólk tekur þau að sér
eru meðal annars þær að fólk getur kynnst
öðrum foreldrum, þjálfurum, stjórnarmönn-
um í félaginu og þannig fullnægt félags-
legum þörfum sínum ásamt því að hjálpa
félagi sínu til að ná settum markmiðum
íþróttarinnar. En það eru ekki bara foreldr-
ar og áhugafólk sem sinna sjálfboðaliða-
störfum innan UMFÍ.
Allir, sem sitja í stjórnum og nefndum
UMFÍ, eru þar í sjálfboðavinnu og það sama
á við um stjórnir og nefndir íþróttafélag-
anna. Í stjórn UMFÍ sitja 11 einstaklingar.
Mikill lærdómur
að vera sjálfboðaliði
Mörg þúsund sjálfboðaliðar koma að verk-
efnum UMFÍ og sambandsaðila á hverju ári.
Hjörleifur Þórðarson hjá Fjölni segir
starfið gefa sér mjög mikið og mælir með því.
Nefndir UMFÍ eru alls 17 talsins og í hverri
nefnd sitja að meðaltali 7 einstaklingar.
Fáir viðburðir yrðu haldnir ef ekki væri
fyrir ósérhlífin störf sjálfboðaliða. Þessi störf
eru líka góð leið til að læra leikreglur,
hvernig rekstur félagasamtaka fer fram og
einnig almenn félagsstörf. Auk þess eru
þátttaka og stuðningur foreldra mikilvæg
fyrir börn og ungmenni og auka líkur á
að barnið haldi áfram að stunda íþróttir.
Innan aðildarfélaga UMFÍ starfa hundruð
sjálfboðaliða sem leggja á sig ómælda
vinnu til hagsbóta fyrir samfélagið. Án þess-
arar miklu vinnu, sem sjálfboðaliðar leggja
af mörkum, færi hið góða og viðamikla
starf innan aðildarfélaga UMFÍ ekki fram.
Störf sjálfboðaliða eru því ekki aðeins ómet-
anleg fyrir aðildarfélög UMFÍ, heldur eru
þau ómetanleg fyrir íslenskt samfélag.
„Það er mjög gaman að vera sjálfboða-
liði og það er mikil skemmtun,“ heldur Hjör-
leifur áfram og hvetur fólk til þess að gefa
af sér og taka að sér sjálfboðaliðastarf.
Hér er Hjörleifur, ásamt félögum sínum úr knattspyrnudeildinni, í getraunakaffi Fjölnis,
sem þeir settu á laggirnar fyrir nokkrum árum. „Getraunakaffið gengur mjög vel. Fólk úr
félaginu kemur þar saman á laugardagsmorgnum, fær sér kaffi, ræðir málin og tippar á
leiki helgarinnar,“ segir Hjörleifur Þórðarson, sem á myndinni stendur við borðið.